Ábending til hundaeiganda
Að gefnu tilefni vill tækni- um umhverfissvið Hornafjarðar koma eftirfarandi ábendingum til hundaeiganda í Sveitarfélaginu Hornafirði. Í samþykkt um hundahald fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð, 2 gr. í málsliðum e. og f., segir eftirfarandi: Hundur skal ávallt bera ól um hálsinn. Á ólinni skal vera plata sem í er greipt skráningarnúmer dýrsins og símanúmer eiganda hans. Óheimilt er með öllu að láta hunda ganga lausa nema á þar til afmörkuðum svæðum. Hundar skulu annars ávallt vera í taumi utanhúss og í fylgd manneskju sem hefur fullt vald yfir þeim. Þegar hundur er í festi á lóð skal lengd festarinnar við það miðuð að óhindrað megi ganga að aðaldyrum hússins.
Hundaeiganda er alltaf skylt að fjarlægja saur eftir hundinn.
Er það ósk bæjaryfirvalda að þessu verði fylgt eftir af hundaeigendum og þeir verði til fyrirmyndar hvað þetta varðar.
- Tækni og umhverfissvið Hornafjarðar





Skrifa athugasemd