Breytingar á fyrirkomulagi álagningu fasteignagjalda 2007.
Innheimta fasteignagjalda verður á hendi fjármálasviðs sveitarfélagsins en ekki á vegum Gjaldheimtu Austurlands eins og verið hefur. Sendir verða út greiðsluseðlar skv. gjalddögum, ef álagning er lægri en 12.000.- verður sendur út einn greiðsluseðill á gjalddaga 1. febrúar. Ekki er gert ráð fyrir að hægt sé að greiða á annan hátt en skv. greiðsluseðli nema ef fólk er í greiðsluþjónustu banka og leggst þá ekki á seðilgjald. Hægt er að hafa samband við fjármálasvið ef óskað er eftir öðrum greiðslumáta svo sem ef nýttur er staðgreiðsluafsláttur. Gjalddagar verða fimm 1. febrúar 1. mars 1. apríl 1. maí og 1. júní Eindagi verður 25 dögum eftir gjalddaga og reiknast þá dráttavextir frá gjalddaga.
Seðilgjald verður 245 kr. og vanskilagjald 500 kr. 30 dögum eftir eindaga Veittur verður 3% staðgreiðsluafláttur ef greitt er fyrir 28. febrúar.





Skrifa athugasemd