Nýjar reglur um niðurgreiðslu vegna daggæslu barna í heimahúsum
Á fundi bæjarráðs Hornafjarðar þann 11.desember s.l. voru samþykktar nýjar reglur vegna daggæslu á einkaheimilum og niðurgreiðslu vegna dagvistargjalda. Hinar nýju reglur eru ítarlegar og er m.a. kveðið á um talsverða aukningu í niðurgreiðslu til foreldra barna sem eru í vistun hjá dagforeldrum auk þess sem nú er greitt niður með börnum hjóna og sambúðarfólks. Niðurgreiðsluflokkarnir eru tveir, annar fyrir hjón og sambúðarfólk og hinn fyrir einstæða foreldra eða þegar annað foreldrið er í námi. Niðurgreiðsla dagvistargjalda fyrir hjón og sambúðarfólk getur hæst numið 14.000,- kr. á mánuði en fyrir aðra er greitt niður um 20.000,- kr. að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
Hægt er að nálgast nýju reglurnar í heild sinni hér en nánari upplýsingar um reglurnar og starfandi dagforeldra í Hornafirði má fá hjá félagsmálastjóra í síma 470-8000.
Sjá reglur





Skrifa athugasemd