Umhverfisnefnd óskar eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna fyrir árið 2006
Þessa dagana auglýsir Umhverfisnefnd Hornafjarðar eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna fyrir árið 2006. Tilnefningar geta meðal annars verið fyrir snyrtilegt umhverfi, náttúruverndarstörf eða náttúrurannsóknir einstaklinga, fyrirtækja eða stofnana. Umhverfisverðlaunin eru ávalt afhent við hátíðlega athöfn í Nýheimum ásamt afhendingu á menningarverðlauna. Fyrir 2004 kom það í hlut Elínar Sigríðar Harðardóttur að taka á móti verðlaununum og fékk hún þau fyrir langt og farsælt starf að umhverfismálum í sveitarfélaginu. Á síðasta ári var það Skinney-Þinganes sem hlaut verðlaunin (fyrir árið 2005) einkum fyrir að hafa komið upp fituskilju og þannig komið í veg fyrir mengun í höfninni og um leið endurnýtt fituna.
Tilnefndir fyrir árið 2005 voru einnig Leikskólar og grunnskólar sveitarfélagsins fyrir þátt þeirra í að upplýsa unga fólkið um þá auðlind sem felst í umhverfi þeirra og hvernig þau geta lagt sitt af mörkum til þess að skila því óskemmdu eða betra til komandi kynslóða.
Háskólasetrið á Hornafirði fyrir að koma á laggirnar og leiða NEST verkefnið sem útleggst sem sjálfbær þróun ferðaþjónustu í og við jaðar þjóðgarða og verndarsvæða. Verkefnið er margþætt og miðar að myndun tengslanets, þróun nýrra viðskiptatækifæra, rannsóknum og umhverfisvottun og því að koma á fót Náttúruskóla.
Lovísa Eymundsdóttir í Hjarðarnesi fyrir þrautseigju og elju við að rækta upp skjólbelti á jörð sinni og skapa þannig skjól umhverfis hýbýli sín og betri skilyrði til að rækta ýmsar nytjajurtir og grænmeti.
Ábúendur á Hala í Suðursveit fyrir að hafa af þrautseigju haldið áfram í árabil að leita að heitu, nýtanlegu vatni á jörð sinni og nú uppskorið laun erfiðis síns og tengt við heitt vatn úr jörðu fyrsta húsið í sýslunni, Þórbergssetur og stefna á að tengja öll hús á bæjartorfunni.
Þeir sem vilja senda inn tilnefningar fyrir árið 2006 þurfa að gera það skriflega fyrir kl. 16.00 laugardaginn 20. janúar næstkomandi. Hægt er að afhenda tilnefningarnar í afgreiðslu Ráðhússins eða á netfangið umhverfi@hornafjordur.is.





Skrifa athugasemd