Tillaga að breytingu á aðalskipulagi 1998-2018
Bæjarstjórn Hornafjarðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 1998-2018, samkvæmt 2. mgr. 21. gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73/1997. Breytingin felst í því, að tekið er í notkun nýtt efnistökusvæði vestan Falljökulskvíslar, í landi Sandfells í Öræfum, um 2,0 km. norð-vestan þjóðvegar nr. 1. fyrir allt að 50.000m3, þar af um 33.000m3 af fastri klöpp. Jafnhliða opnun svæðisins verður aflögð grjótnáma við Virkisá í Öræfum. Breytingartillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, og í Hofgarði í Öræfum, frá fimmtudeginum 21. des. 2006 til fimmtudagsins 11. janúar, 2007. Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna, eigi síðar en fimmtudaginn 11. janúar, 2007.
Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Hornafjarðar, og skulu þær vera skriflegar. Hver sá, sem ekki gerir athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest, telst henni samþykkur.
Bæjarstjóri Hornafjarðar





Skrifa athugasemd