Niðurstaða fjárhagsáætlunar 2007 jákvæð um 15 m.kr.
Fréttatilkynning vegna fjárhagsáætlunar 2007
Markmið bæjarstjórnar fyrir árið 2007 er að viðhalda þjónustustigi og efla það en jafnframt að halda áfram að reka bæjarsjóð með ábyrgum hætti. Árið 2007 einkennist af miklum framkvæmdum og viðhaldi eigna sveitarfélagsins. Ennfremur eru stigin mikilvæg skref í stuðningi við atvinnulíf. Heildarvelta sveitarfélagsins og tengdra fyrirtækja er áætluð 1.585 m.kr. en heildargjöld 1.466 m.kr. að frádregnum fjármagnsliðum. Fjármagnsliðir eru neikvæðir um 104 m.kr.. Niðurstaðan er því jákvæð um 15 m.kr. Handbært fé frá rekstri er 167 m.kr. Gert er ráð fyrir framkvæmdum upp á 318 m.kr. og lántöku upp á 236 m.kr. Afborganir langtímalána eru 114 m.kr. Handbært fé í árslok 2007 er áætlað 49 m.kr.
Árið 2007 mun einkennast af miklum umsvifum í sveitarfélaginu. Gert er ráð fyrir framkvæmdum fyrir 318 m.kr. hjá A og B hluta sveitarfélagsins. Meðal annars verður hafist handa við byggingu nýrrar sundlaugar, lokið verður við byggingu frjálsíþróttavallar á Sindravöllum, gert er ráð fyrir fjármagni til lóðaframkvæmda og í opin svæði og göngustíga, í ýmis verkefni í dreifbýli t.d. götulýsingu og frágang á lóð í Hofgarði.
Unnið verður að framgangi mikilvægra mála á næsta ári. Til dæmis kemur ný skólastefna til framkvæmda, endurskoðun á stefnu í menningarmálum heldur áfram og heilbrigðis- og öldrunarmál verða tekin til skoðunar.
Málefni fjölskyldunnar eru í brennidepli. Á árinu 2007 lækka leikskólagjöld að raungildi, niðurgreiðslur vegna vistunar barna hjá dagmæðrum aukast umtalsvert, málefni nýbúa og félagslíf ungs fólks verður tekið til sérstakrar skoðunar og áfram verður unnið að því að styðja við börn og fjölskyldur þeirra með þverfaglegri vinnu starfsmanna HSSA, skólanna og félagsþjónustunnar.
Skipuð hefur verið nefnd til að endurskoða fjallskil í sveitarfélaginu og komið hefur verið á samstarfi á milli sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar um stefnumótun varðandi lausagöngu búfjár.
Þá er stefnt að því að innleiða árangursmælikvarða í auknum mæli í starf stjórnsýslunnar og herða innra eftirlit. Snemma árs 2007 verður framkvæmd skoðanakönnun meðal íbúa. Könnunin á að gefa mikilvægar vísbendingar um hugmyndir fólks til þjónustu sveitarfélagsins og hvar sé mikilvægast að bæta hana.
Ákveðið hefur verið að styðja við bakið á ferðaþjónustu í sveitarfélaginu með samningi sem gildir út þetta kjörtímabil. Samningurinn felur í sér að sveitarfélagið leggur fram eina krónu á móti hverri krónu sem lögð er fram af ferðaþjónustuaðilum. Að hámarki mun sveitarfélagið setja þrjár milljónir í verkefnið á hverju ári. Það er trú þeirra sem standa að samningnum að þarna sé stigið mikilvægt skref í átt að kröftugri markaðssetningu og vöruþróun fyrir ferðaþjónustuaðila í sveitarfélaginu.
Á árinu 2007 mun undirbúningur að stofnun stærsta þjóðgarðs í Evrópu, Vatnajökulsþjóðgarðs, ná hámarki. Íbúar í Sveitarfélaginu Hornafirði hafa verið leiðandi í þessari umræðu og tekið virkan þátt í mótun lagafrumvarps sem nú liggur frammi á Alþingi. Mikil tækifæri felast í þessum stærsta þjóðgarði í Evrópu og þau þurfum við að nýta.
Árið 2007 er afmælisár. Þá verða liðin 110 ár síðan fyrstu húsin risu við Hafnarvík og Heppu. Ákveðið hefur verið að minnast þessara tímamóta með ýmsum hætti, t.d. með menningarviðburðum, atvinnulífssýningu og ráðstefnum.
Sveitarfélagið mun leggja áherslu á að styrkja þjónustu sína gagnvart íbúum og halda áfram stuðningi sínum við atvinnulífið og rannsóknar- og þróunarstarf í Nýheimum. Starfsemin þar hefur dafnað vel og sífellt aukinn kraftur að færast í verkefni stofnana sem þar eru með aðstöðu.
Miklar breytingar í atvinnuháttum og menningu kalla á að við hlúum vel að framtíð héraðsins. Tæknivæðing, útrás fyrirtækja, þennsla á höfuðborgarsvæðinu og Mið-Austurlandi draga til sín fólk og fjármagn. Mikilvægt er að bæjarbúar taki höndum saman og einbeiti sér að tryggja samkeppnisstöðu sveitarfélagsins í þessu umróti.
Fylgigögn með fréttatilkynningu
- Fjárhagsáætlun 2007 kynning (pdf)
- Greinargerð vegna fjárhagsáætlunar 2007 (pdf)
- Fjárhagsáætlun 2007 - rekstur (pdf)
- Fjárhagsáætlun 2007 - deildaryfirlit (pdf)
- Fjárhagsáætlun 2007 - sjóðstreymisyfirlit (pdf)
- Fjárhagsáætlun 2007 - efnahagsyfirlit (pdf)




Skrifa athugasemd