Fréttir
Frá sundæfingu
Frá sundæfingu

15.12.2006 Fréttir

Sundlaugin fer í jólafrí 17. desember

Síðasta opnunardagur sundlaugarinnar fyrir áramót er sunnudagurinn 17.desember. Eftir það verður lauginni lokað fram til mánudagsins 8.janúar á næsta ári. Þennan síðasta sunddag fyrir jól verða jólalögin leikin og gestir fá gott í skóinn. Meðan á lokun stendur verður unnið að viðhaldi í lauginni að venju. Á þessu ári hafa um 25,000 gestir komið í sundlaugina en það er nokkur fækkun frá fyrra ári. Að venju var aðsókn mest á sumarmánuðum. Sundlaugin á sína fastagesti sem flestir taka daginn snemma og fá sér sundsprett og láta líða úr sér í pottunum áður en gengið er til daglegra starfa.

Um leið og starfsmenn sundlaugarinn óska gestum gleðilegra jóla og farsæls árs og þakka þeim fyrir sundheimsóknirnar á árinu sem er að líða, vonast þeir til að sjá sem flesta í lauginni á nýju ári.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica