Fréttir
Senn hefst skólinn (úr myndasafni)
Senn hefst skólinn (úr myndasafni)

13.09.2006 Fréttir

Útivistartíminn breyttist 1. september

Reglur um útivistartíma barna og unglinga, skv. barnverndarlögum, breyttust 1. september. Frá 1. september til 1. maí mega börn 12 ára og yngri vera úti til kl. 20 en 13 - 16 ára börn mega vera úti til kl. 22. Mikilvægt er að árétta að þetta er sá tími sem þau mega vera úti, foreldrar og forráðamenn geta að sjálfsögðu þrengt þennan tímaramma. Það skiptir miklu máli fyrir vellíðan barna að foreldrar standi saman um að halda útivistarreglurnar t.d. hvað varðar svefn, slys og einnig dregur það úr líkum á að börnin fari að fikta við áfengi eða önnur vímuefni að útivistarreglunum sé fylgt. Vonandi er svona segulspjald á ísskápnum heima hjá ykkur til að minna á mikilvægi þess að standa saman í því að virða útivistarreglurnar.

SAMAN hópurinn hefur gefið út slík spjöld og hafa þau verið gefin í elstu bekki í Hafnarskóla undanfarin ár.

-Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar

 

útivistarreglur

 

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica