Vinnuskóli Hornafjarðar kominn á fullt skrið
Eins og flestir hafa tekið eftir er Vinnuskóli Hornafjarðar kominn á fullt skrið og hefur bærinn okkar verið að taka á sig blómlegan svip. Þegar eru um 30 unglingar komnir til starfa og hafa þau auk ruslatínslu, hreinsun beða, sláttar og annarra hefðbundinna sumarstarfa einnig unnið við sléttun undir sáningu og þökulagningu.
Eitt af markmiðum Vinnuskólans er að undirbúa unglingana fyrir almennan vinnumarkað. Sem liður í þeim markmiðum voru haldin fræðslunámskeið fyrir starfsmenn Vinnuskólans mánudaginn 12. júní og fimmtudaginn 22. júní í fyrirlestrarsal Sindrabæjar. Mánudaginn 12. júní var Guðbrandur Jóhannsson með námskeið í skyndihjálp, Borgþór Freysteinsson, eldvarnareftirlitsmaður og heilbrigðisfulltrúi fræddi unglingana um eldvarnir, meðferð slökkvitækja og þær hættur sem geta leynst í umhverfinu, verkstjóri Vinnuskólans Gísli Örn Reynisson fór yfir helstu verkefni sumarsins og hvernig vinnunni yrði háttað þetta sumarið, Haukur Þorvaldsson ræddi um félags og forvarnarþátt skólans, Rannveig Einarsdóttir garðyrkjufræðingur fræddi unglingana um umhverfið og náttúruna ásamt því að fara yfir umhirðu blóma og beða og að lokun sýndi Hulda Laxdal unglingunum rétta líkamsbeitingu við vinnu.
Fimmtudaginn 22. júní ræddi svo Ragnhildur Jónsdóttir við flokkstjóra og unglinga um samskipti og stjórnun. Starfsmenn Landsbanka Íslands og Sparisjóðs Hornafjarðar gáfu unglingunum góð ráð varðandi fjármál og þá sérlega ávöxtun launa.
Vinnuskólinn vill koma á framfæri sérstöku þakklæti til allra fyrirlesara námskeiðanna og erum við sannfærð um að þau hafi skilað tilætluðum árangri.
Í dag var unglingunum svo verðlaunað fyrir vel unnin störf hjá Vinnuskólanum, en þau hafa að okkar mati staðið sig vel og því vert að verlauna þau með pylsupartýi við Áhaldahús. Eins víst er að það verði gert oftar ef krakkarnir standa sig betur eða allavega jafn vel og undarfarnar tvær vikur. Þar að auki voru valdir starfsmenn vikunnar í hverjum hópi en þau eru: Sandra Ósk Hansdóttir, Óli Kristján Benediktsson, Örvar Már Helgason, Ólafur Albert Sævarsson og Freyr Sigurðsson en hann var ekki við vinnu í dag og fengu þau ís í eftirrétt. Í dag starfa alls 52 starfsmenn í vinnuskólanum að meðtöldum sláttuhóp og verkstjórum.
Tækni- og umhverfissvið




Skrifa athugasemd