Stýrihópur um lýðheilsu
Allt hefur áhrif - einkum við sjálf! Þetta eru einkunnarorð þróunarverkefnis sem Sveitarfélagið Hornafjörður, ásamt 24 öðrum sveitarfélögum er að vinna í samvinnu við Lýðheilsustöð. Markmiðið er að bæta lífshætti barna og fjölskyldna þeirra. Aðaláhersla er á hreyfingu og góða næringu Með verkefninu er leitast við að: Vekja fólk til umhugsunar um heilsu, Standa fyrir fræðslu um það sem hefur áhrif á heilsu, Skoða hvaða þættir sem hafa áhrif á heilsu eru í lagi og hvaða þætti er hægt að bæta í sveitarfélaginu og virkja Virkja sem flesta, á öllum aldri, til að eiga hlutdeild í verkefninu.
Um 25 sveitarfélög á landinu taka þátt í verkefninu þar sem hvert sveitarfélag mótar sína stefnu og aðgerðaráætlun um bætta heilsu íbúanna. Allt eftir þörfum, efnum og aðstæðum á hverjum stað.
Í hverju sveitarfélagi er stofnaður stýrihópur sem kemur verkefninu af stað og heldur í upphafi utan um það. Stýrihópurinn vinnu að hugmyndabanka varðandi heilsueflandi aðgerðir og leggur fram tillögur að því í hvaða nefndum og sviðum hinar mismunandi aðgerðir skuli vistaðar. Gert er ráð fyrir að stýrihópinn skipi aðilar frá skóla,leikskóla,heilsugæslu, íþróttahreyfingu, fulltrúi foreldra ef þurfa þykir. Einn úr stýrihópi er tengiliður við Lýðheilsustöð.
Lýðheilsustöð kemur að verkefninu með ráðgjöf, fræðslu og mati á árangri. Gert er stöðumat í upphafi og árangur svo metin þegar líður á verkefnið. Fræðsla verður m.a. í formi námskeiða fyrir starfsfólk skólana og fyrirlestra fyrir starfsfólk og foreldra. Sem dæmi má nefna að snemma í ferlinum koma aðilar frá Lýðheilsustöð til okkar með fyrirlestra um næringu, hreyfingu og geðrækt fyrir starfsfólk stofnana og foreldra. Auk þessa munu birtast auglýsingar varðandi bætta lífshætti í sjónvarpi og útvarpi. Einnig verður upplýsingum komið á framfæri með veggspjöldum, bæklingum, upplýsingaspjöldum og fleiru sem hengt er upp, stendur þetta til boða í stofnunum og fyrirtækjum eða berst á heimili gegn um skólana eða með pósti.
Stýrihóp sveitarfélagsins hér skipa:
Hulda Laxdal Hauksdóttir verkefnastjóri, sími: 478-2552, netfang: hulax@simnet.is
Ester Þorvaldsdóttir hjúkrunarfræðingur, sími: 478-1400, netfang: ester@hssa.is
Sævar Þór Gylfason íþróttakennari, sími: 478-1142, netfang: saevar@hafnarskoli.is
Marianna Jónsdóttir leikskólakennari, sími: 478-1315, netfang: mariannaj@hornafjordur.is
Stefán Ólafsson framkvstj. fræðslu- og félagssviðs, sími: 470-8000, netfang:stefan@hornafjordur.is
Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundafulltr., sími: 470-8000, netfang: haukur@hornafjordur.is
Verkefnastjóri Lýðheilsustöðvar er: Jórlaug Heimisdóttir, netfang: jorlaug@lydheilsustod.is
Heimasíða Lýðheilsustöðvar: http://www.lydheilsustod.is
Upplýsingar um gang verkefnisins er að finna hér á heimasíðu sveitarfélagsins með því og smella á tenglinn, Allt hefur áhrif einkum við sjálf.
Stýrihópurinn hefur starfað frá því í febrúar 2005 og komið saman í 12 skipti.
.jpg)




Skrifa athugasemd