Fréttir
Geir Þorsteinsson byggingarverktaki er meðal þeirra Hornfirðinga sem nýta sér reiðhjólið
Geir Þorsteinsson
Geir Þorsteinsson byggingarverktaki er meðal þeirra Hornfirðinga sem hefur nýtt sér reiðhjólið (úr myndasafni)

19.05.2006 Fréttir

Hjólað í vinnuna - Hornafjörður í 6 sæti

Nú liggja endanleg úrslit fyrir í verkefninu Hjólað í vinnuna 2006. Verkefnið er liður í fræðslu og hvatningarverkefni ÍSÍ, Ísland á iði. Glæsilegur árangur náðist í heildina og voru öll þau met sem hægt var að slá sleginn. Alls áttu 246 vinnustaðir frá 34 sveitarfélögum lið í Hjólað í vinnuna í ár. Farnir voru hvorki meira né minna en 230,543 km eða 172,18 hringir í kringum landið. Til samanburðar þá voru farnir í fyrra 173.762 km eða 129,8 hringir í kringum landið. Ferðamáti var í 59,98% tilfella á hjóli, 38,37% gangandi, 1,18% með strætó, 0,17% á línuskautum og í 0,29% ferða nýttu þátttakendur eigin orku á annan hátt.
Hér á Hornafirði tóku 6 vinnustaðir þátt í verkefninu og hjóluðu starfsmenn þeirra alls 2666 km. í 850 daga sem dugði í 6. sæti fyrir sveitarfélagið í heildina.

Keppt var um flesta þátttökudaga og flesta kílómetra miðað við fjölda starfsmanna.
Niðurstaðan á Hornafirði er sem hér segir:
Í hópi vinnustaða með 10-29 starfsmenn náði Hafnarskóli 23. sæti af 83. vinnustöðum sem tóku þátt, Leikskólinn Lönguhólar varð í 30. sæti, Heppuskóli í 39. sæti og Náttúrulega (Nýheimaliðið) í 46. sæti.
Í hópi vinnustaða með 30-69 starfsmenn náði HSSA 5. sæti af 49 vinnustöðum sem tóku þátt.
Í hópi vinnustaða með 70-149 starfsmenn náði Skinney/Þinganes 27. sæti af 45 vinnustöðum sem tóku þátt.
Hornfirðingar eru hvattir til að fylgja eftir þessum góða árangri og halda áfram að hjóla eða ganga í vinnuna.
Nánar er hægt að sjá úrslit á vefnum www.isisport.is. Hjólað í vinnuna.

haukur@hornafjordur.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica