Umhverfishreinsunarátak í þéttbýli Hafnar og Nesjum
Helgarnar 20.-21. og 27.-28. maí verður áframhaldandi hreinsunarátak í þéttbýli Hafnar og Nesjum. Garðeigendur og lóðahafar eru hvattir til þess að hreinsa til á lóðum sínum og einnig að líta til nánasta umhverfis.
Á Leirusvæði má einungis losa ómengaðan jarðveg s.s grjót, möl, sand, leir, mold, ójárnbundin steypu- og múrbrot, hellur og aðrar smærri framleiðslueiningar úr steinsteypu. Ekki má losa garðaúrgang á Leirusvæði heldur verður losun garðaúrgangs inní Fjárhúsavík (gömlu ruslahaugunum inná Ægissíðu). Óskað er eftir því að fólk flokki garðaúrgang í þrjá flokka: 1 gras, 2 trjágreinar og afklippur, 3 annar garðaúrgangur s.s blómaafskurður, illgresi, þökuafgangar og mold í minna mæli. Mikilvægt er að garðaúrgangurinn sé ekki blandaður öðrum úrgangi þar sem hann verður nýttur til jarðgerðar eða landgræðslu. Munið því að tæma úr pokum.
Garðaúrgangur og rusl sem sett verður í pokum út við götu verður fjarlægt af starfsmönnum Áhaldahúss mánudagana 22. og 29. maí, en jafnframt má hafa samband við Tæknideildina ef þörf er á annarri aðstoð og við munum gera það sem við getum. Mikilvægt er að garðaúrgangurinn sem settur er út við götu sé einnig flokkaður í pokana samkvæmt flokkunum hér að ofan.
Einnig viljum við benda á að móttaka bílhræja er á gámastöð og hægt er að fá greitt fyrir bílhræin hjá sýslumanni en mikið er um bílhræ við hús í þéttbýlinu.
Ef aðilar eiga í vandræðum með að flytja bílhræ til gámastöðvar, getur starfsmaður frá Áhaldahúsi ásamt Guðna Karlssyni sótt bílhræ gegn lámarks greiðslu.
Jafnfram viljum við benda á að umgengni og umhirðu er víða ábótavant á iðnaðarlóðum í sveitarfélaginu. Því hvetjum við fyrirtæki sérstaklega til að taka til hendinni við hreinsunarátakið og hjálpa okkur við að gera bæinn okkar til fyrirmyndar áður en farið verður í frekari kostnaðarsamar aðgerðir.
Eins og áður eru bæjarbúar hvattir til að efna til sameiginlegra hreinsunardaga í sinni götu eða sínu hverfi og geri sér svo glaðan dag að lokinni hreinsun t.d með grillveislu eða álíka uppákomum.
Gróðurmold
Hægt er að nálgast gróðurmold norðan við gatnamót Fákaleiru og Álaleiru
Matjurtagarðar
Íbúum gefst kostur á að leigja matjurtagarða eins og s.l. sumur. Matjurtagarðarnir verða á sama stað og í fyrra þ.e. austan við ,,brennuhólinn" gegnt gömlu Mjólkurstöðinni. Sækja þarf um garð á bæjarskrifstofu.
Tækni- og umhverfissvið Hornafjarðar




Skrifa athugasemd