Fréttir
Jón Kristján Rögnvaldsson
Jón Kristján Rögnvaldsson
Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri Hornafjarðar

09.05.2006 Fréttir

Jón Kristján til starfa sem félagsmálastjóri Hornafjarðar

Í gær tók Jón Kristján Rögnvaldsson til starfa sem félagsmálastjóri Hornafjarðar. Jón Kristján hefur nýverið lokið námi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Forveri hans í starfi Félagsmálastjóra Hornafjarðar var Birgir Þ. Kjartansson sem nú hefur sótt á önnur mið. Jón Kristján er ættaður frá Akureyri en hélt síðan til náms í Reykjavík þar sem hann hefur búið undanfarin fjögur ár við nám og störf. Hann flytur til Hornafjarðar ásamt sambýliskonu sinni Eyrúnu Unni Guðmundsdóttur og dóttur þeirra. Eyrún er einnig útskrifuð úr félagsráðgjöf við Háskóla Íslands.

Skrifstofa félagsmálastjóra er í Ráðhúsi Hornafjarðar 3ju hæð.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica