Fréttir
Albert bæjarstjóri tilbúin á hjólinu
Albert bæjarstjóri tilbúin á hjólinu
Albert Eymundsson bæjarstjóri á hjólinu.

02.05.2006 Fréttir

Átak ÍSÍ “Hjólað í vinnuna” hefst á morgun 3. maí

Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar vill vekja athygli á þessu verkefni og hvetja vinnustaði á Hornafirði til þátttöku. Þetta er fyrirtækjakeppni og er meginmarkmið verkefnisins að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum , hagkvæmum og umhverfisvænum samgöngumáta. Keppnin er byggð í kringum heimasíðu verkefnisins sem er vistuð á isisport.is. Keppt er í 6 fyrirtækjaflokkum um flesta daga og flesta kílómetra, hlutfallslega miðað við fjölda starfsmanna í fyrirtækjum. Gott er að einn í hverju fyrirtæki haldi utan um verkefnið. Allir þeir sem nýta eigin orku til að koma sér til vinnu s.s. hjóla eða ganga geta tekið þátt. Aðalatriðið að fá sem flesta með, sem oftast. Þátttaka hefur tvöfaldast á milli ára og tífaldast þau þrjú ár sem verkefnið hefur farið fram.

Vinnustaðir hér á Hornafirði hafa staðið sig mjög vel undanfarin ár og er ekki að efa að svo verði að þessu sinni. Átakið stendur frá 3. til 16. maí.

Allir út að hjóla og ganga.

 

- Haukur Helgi


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica