Höldum bænum okkar hreinum og snyrtilegum
Tækni- og umhverfissvið vill koma á framfæri þakklæti til bæjarbúa vegna samstöðu við árlega vorhreinsun í sínu nánasta umhverfi. Í tilefni af opinberri heimsókn forseta Íslands óskuðum við eftir því við forstöðu- og umsjónarmenn opinberra stofnana, sem og bæjarbúa alla, að taka saman höndum og gera vorhreingerningu á lóðum sínum, runnum, beðum og nánasta umhverfi í fyrra falli þetta vorið. Að okkar mati hefur það skilað árangri og má greinilega víða sjá árangur erfiðisins, þó svo að víða sé enn þá ýmsu ábótavant. Því langar okkur að hvetja til áframhaldandi átaks og halda bænum okkar hreinum og snyrtilegum. Starfsmenn Áhaldahúss geta lagt garðeigendum lið. Hafa má samband við tækni- og umhverfissvið og við munum gera það sem við getum til að aðstoða.
Jafnframt er bæjarbúar hvattir til að efna til sameiginlegra hreinsunardaga í sinni götu eða sínu hverfi og geri sér svo glaðan dag að lokinni hreinsun t.d með grillveislu eða álíka uppákomum.
Tækni og umhverfissvið Hornafjarðar




Skrifa athugasemd