Hvatning til íbúa!
Opinber heimsókn forseta Íslands í Austur-Skaftafellssýslu
Ágætu íbúar!
Forseti Íslands og forsetafrú koma í opinbera heimsókn í Austur-Skaftafellssýslu dagana 25. og 26.apríl. Við skulum taka vel á móti góðum gestum. Íbúar eru hvattir til að taka virkan þátt í dagskrá heimsóknarinnar eins og kostur er, draga þjóðfánann að húni meðan á heimsókninni stendur og nota tækifærið til að huga að fegrun og snyrtingu á sínu nánasta umhverfi. Ég vil sérstaklega hvetja alla Austur-Skaftfellinga til að sækja fjölskylduhátíðina í Íþróttahúsinu á Höfn að kvöldi þriðjudagsins 25. apríl.
Við bjóðum gestina velkomna í sýsluna að hætti Austur-Skaftafellinga!
Albert Eymundsson bæjarstjóri





Skrifa athugasemd