Gert er ráð fyrir 36 fermetra vaðlaug og tveimur pottum
Bæjarstjórn hefur samþykkt meðfylgjandi teikningar af sundlaug við Heppuskóla. Um er að ræða 25 metra langt sundlaugarker sem er 8,5 metrar á breidd. Þar er einnig gert ráð fyrir 36 fermetra vaðlaug og tveimur staðsteyptum pottum, hvor 10 manna. Sambyggt sundlaugarkerinu er síðan lendingarker fyrir vatnsrennibraut 4 x 6 metrar og gert er ráð fyrir minni rennibraut og vatnsleikjatækjum í vaðlaug. Möguleiki er því á að skipta lauginni upp í tvö svæði auk þess sem hægt er að synda bæði 12, 5 metra og 25 metra. Í fyrsta áfanga, sem áætlað er að verði tilbúinn um sumarið 2007, er gert ráð fyrir tveimur tvöföldum búningsklefum, með aðstöðu fyrir fatlaða, gufubaði, starfsmannaðstöðu og móttöku. Einnig verður tækjakjallari undir mannvirkinu að hluta. Stærð byggingarinnar er um 400 fermetrar auk tækjakjallara. Samþykkt hefur verið að heildarkostnaður mannvirkisins verði um 330 mkr.
Síðar meir verður hægt að byggja tvo aðra tvöfalda búningsklefa upp við íþróttahúsið og tengja það við anddyrisbygginguna og íþróttahúsið og Heppuskóla. Einnig er möguleiki á litlum sal á efri hæð sem tengist svölum íþróttahússins og gæti hann hvort heldur nýst íþróttahúsinu sem og skólanum. Einnig er gert ráð fyrir innisundlaug sem verður 10 x 6 metrar af stærð
Heildarkostnaður íþróttamiðstöðvarinnar er um 550 mkr.
Teikningar
Sundlaug aðalteikning (pdf)





Skrifa athugasemd