Fréttir
Við smábátahöfnina
Við smábátahöfnina
Smábátahöfnin (úr myndasafni)

06.04.2006 Fréttir

Opinn borgarafundur í Nýheimum

Opinn borgarafundur á vegum Sveitarfélagsins Hornafjarðar um endurskoðun á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar verður haldinn í Nýheimum í kvöld, fimmtudaginn 6.apríl og hefst fundurinn kl. 20:00. Á fundinum verða meðal annars kynntar breytingartillögur á þjóðvegi 1. Fulltrúar sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar munu gera grein fyrir tillögum og svara spurningum fundargesta. Ætla má að þetta verði fjölmennur fundur þar sem menn hafa ekki verið á eitt sáttir með þær breytingar sem áætlað er aðverði á vegstæði í Öræfum og við Hornafjarðarfljót.

Allir sem láta sig varðar skipulagsmál og staðsetningu þjóðvegar nr.1 eru hvattir til að mæta á fundinn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica