Fréttir
Snjór á Höfn 15. janúar 2006
Snjór á Höfn 15. janúar 2006
Snjór á Höfn . Björn Jónsson starfsmaður Sveitarfélagsins að moka af götum bæjarins.

17.01.2006 Fréttir

Viðmið og verklag vegna snjómoksturs og hálkueyðingar

Hjá Sveitarfélaginu Hornafirði er það áhaldahús sér almennt um hálkueyðingu og snjómokstur í sveitarfélaginu. Verkstjóri áhaldahúss eða yfirmenn hans meta aðstæður hverju sinni og ráða aðra verktaka eftir þörfum. Hafa skal eftirfarandi verklagsreglur til viðmiðunar. Varðandi snjómokstur þá fer Vegagerðin fer eftir þeirri leið sem kallast þjóðvegur í þéttbýli þ.e. frá hafnarbakka við Álaugarey norður Sæbraut að gatnamótum við Álaugarveg til vesturs og eftir Víkurbraut til norðurs að gatnamótum Hafnarbrautar og til norðurs út úr bænum. Um er að ræða einfalda braut. Áhaldahús ryður síðan betur þessa leið, þ.e. tvíbreitt og fer síðan í aðrar hliðargötur þar sem áhersla er lögð á stofnanir sveitarfélagsins s.s.

  • Víkurbraut frá Hafnarbraut til vesturs að Ekru / heilsugæslu (sjúkrabíll)
  • Hafnarbraut frá Víkurbraut til enda ásamt Svalbarði og Tjarnarbrú (skólabíll/sundlaug)
  • Vesturbraut með hliðargötu frá Norðurbraut og Kirkjubraut (leikskólar)
  • Kirkjubraut, Sandbakkavegur, Ránarslóð
    Silfurbraut
  • Krosseyjarvegur
  • Óslandsvegur
  • Ófeigstangi og ónefndar götur á hafnarsvæði

Á sama tíma fer aðili á vegum áhaldahúss og hreinsar við Nesjaskóla og íþróttahús ásamt íbúðargötum í Hæðargarði og Hraunhól. Í dreifbýlinu er lögð áhersla á að hreinsa leið skólabíla eftir því sem við verður komið. Eftir að þessar leiðir eru orðnar sæmilega færar þá er öðrum götum sinnt eins og kostur er jafnframt því sem þessum leiðum er viðhaldið.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica