Skuldir bæjarsjóðs lækka þrátt fyrir miklar framkvæmdir.
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árið 2006 var samþykkt í bæjarstjórn 1. desember sl. Þar kemur fram að heildarvelta bæjarsjóðs, stofnana og fyrirtækja bæjarins (Heilbrigðistofnunar Suðausturlands, Hornafjarðarhafnar, vatnsveitunnar og húsnæðiskerfisins) verður um 1,7 milljarður . Launakostnaður er afgerandi útgjaldaþáttur með um 65,6% af skatttekjum og fræðslu- og uppeldismál vega þyngst með um 57,4% af skatttekjum. Bæjarstjórn hefur á síðustu árum beitt aðhaldi í útgjöldum og lækkað skuldir bæjarsjóðs verulega. Með því móti skapast svigrúm til að framkvæma stærri verkefni. Á næsta ári er áætlað að verja 150 m.kr. til framkvæmda á vegum bæjarsjóðs. Forgangsverkefni eru sundlaug og íþróttasvæði. Jafnframt verður framkvæmt á vegum vatnsveitu fyrir 4 m.kr. og hafnarsjóðs fyrir 110,7 m.kr. en af þeirri upphæð koma 75,0 m.kr. af samgönguáætlun.
Áætlað er að taka 70,0 m.kr. lán á vegum bæjarsjóðs og greiða eldri lán um 90 m.kr. Því er verið að lækka skuldir bæjarsjóðs um 20 m.kr. þrátt fyrir umtalsverðar framkvæmdir. Sömuleiðis þarf hafnarsjóður að taka 16,0 m.kr. lán en greiðir af eldri lánum 8,3 m.kr.
Eins og að framan greinir eru launagreiðslur hátt hlutfall af útgjöldum sveitarfélagsins. Heimild er fyrir um 190 stöðugildum hjá öllum stofnunum. Þar af er um helmingur þeirra eða 93 vegna fræðslumála, heilbrigðisstofnunin ræður um 53 stöðugildum og rúmlega 44 stöðugildi eru vegna annarra málaflokka. Við þetta bætist vinnuskólinn yfir sumartímann með yfir 100 starfsmönnum á launaskrá.
Heildarvelta skiptist þannig:
| Bæjarsjóður |
1.143,8 m.kr. |
| HSSA |
338,2 m.kr. |
| Hornafjarðarhöfn |
165,9 m.kr. |
| Félagslega húsnæði . |
20,3 m.kr |
| Vatnsveitan |
28,3 m.kr. |
|
Samtals |
1.696,5 m.kr. |
Helstu stærðir bæjarsjóðs eru þessar:
Tekjur
| Útsvar |
470,2 m.kr. |
| Jöfnunarsjóðsframlag |
220,5 m.kr. |
| Fasteignaskattar |
109,9 m.kr. |
| Lóðaleigugjöld |
10,7 m.kr. |
|
Samtals |
811,3 m.kr. |
Gjöld
| Fræðslu- og uppeldismál |
476,0 m.kr. |
| Sameiginlegur kostnaður |
98,1 m.kr. |
| Æskulýðs- og íþróttamál |
61,7 m.kr. |
| Menningarmál |
33,9 m.kr. |
| Félagsþjónusta |
40,5 m.kr. |
| Atvinnumál |
18,0 m.kr. |
| Almenningsgarðar og útivist |
14,5 m.kr. |
| Skipulags- og byggingarmál |
18,5 m.kr. |
| Bruna- og almannavarnir |
12,1 m.kr. |
| Hreinlætismál |
10,6 m.kr. |
|
Samtals |
783,9 m.kr. |
Eins og sést á þessu yfirliti er starfsemi sveitarfélagsins umfangsmikil og fjölþætt.
Frekari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni innan tíðar þar sem áætlunin verður birt í heild sinni ásamt greinagerð bæjarstjóra.




Skrifa athugasemd