Heimsóttu ráðhús sveitarfélagsins
Í dag, 1. desember 2005, heimsóttu nemendur og starfsfólk Hafnarskóla ráðhús sveitarfélagsins. Bæjarráð ásamt starfsmönnum í ráðhúsi tók á móti hópnum framan við húsið. Nemendur sungu nokkur lög og færðu bæjarráði, bæjarstjóra og framkvstj. fræðslu- og félagssviðs áletraða boli að gjöf. Á bolunum er merki Hafnarskóla og áletranirnar Byggjum betra samfélag og VIRÐING FRELSI VINÁTTA
Forseti bæjarstjórnar, Halldóra B. Jónsdóttir, ávarpaði hópinn og þakkaði bæði heimsóknina og gjafirnar.





Skrifa athugasemd