Fréttir
Flóð á Höfn 15.10 2005
Flóð á Höfn 15.10 2005
Flóð á Höfn 15.10 2005
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

20.10.2005 Fréttir

Flóðin á Höfn

Úrkoma á Höfn og nágrenni frá hádegi föstudagsins 14. október til um kl. 21 á laugardagskvöld er áætluð um 185 mm. Í Akurnesi mældist á þessum tíma 220 mm úrkoma. Á föstudagskvöld tók að bera á vatnsflóðum í íbúðarhús og hafist var handa við dælingu sem var framhaldið þá um nóttina og á laugardaginn. Það voru starfsmenn í áhaldahúsi, slökkviliði og tæknideild sem unnu við dælingar og notuðu til verksins allar tiltækar dælur frá Króm og Hvítt, Rarik og Rósaberg, auk öflugra dælubíla slökkviliðsins. Fráveitukerfi Hafnar, líkt og almennt gerist með slík kerfi, er hannað til að taka á móti fljóðatjónum sem koma á 5-10 ára fresti. Ef kerfi eru hönnuð til að geta flutt vatn vegna meiri úrkomu eru mun dýrari og virkni þeirra verri, t.d. vegna sjálfhreinsunar. Veðrið sem hér geisaði frá hádegi á föstudag til laugardagskvölds er talið endurtaka sig á 100 ára fresti og er umtalsvert meira flóð en fráveitukerfið er hannað til að taka á móti, samkvæmt upplýsingum frá Línuhönnun.

Þrátt fyrir að aldrei sé hægt að koma í veg fyrir atburði sem þessa eru möguleikar á að lágmarka þá með því að huga betur að frárennslismöguleikum á yfirborði svæða og með því að bæta við yfirfalli á ákveðnum stöðum. Til að átta sig betur á flóðunum og hönnun fráveitukerfisins er hægt að lesa samantekt Línuhönnunar sem hannaði kerfin. Ennfremur er hægt að sjá kort af Höfn sem sýnir hvar flæddi og tjón urðu á eignum. Rétt er að benda á að enn eru að bætast við eignir sem hafa orðið fyrir tjóni.

Sjá nánar:

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica