Starfsmenn Sveitarfélagsins í rokkið
Á laugardaginn kemur eða nánar tiltekið Fyrsta vetrardag verður mikill rokkdagur hjá starfsmönnum Sveitarfélagsins Hornafjarðar en þá ætla þeir ásamt mökum sínum að gera sér dagamun og bregða sér á rokkveisluna Rokk í 50 ár á Hótel Höfn með öllu tilheyrandi mat, drykk og dansi. Á annað hundrað manns mæta þar. Átta ár eru liðin síðan slík starfsmannahátíð var haldin síðast sem var á 100 ára afmælishátið Hafnar í íþróttahúsinu. Í það skipti fór einmitt fram keppnin um afmælislag Hafnar og var það lag Heiðars Sigurðssonar Kæra Höfn sem bar sigur úr býtum en hann er tónlistarstjóri Rokk í 50 ár. Undirbúningsnefnd hefur unnið að undirbúningi hátíðarinnar í nokkra mánuði og hefur þegar gert tillögu að næstu hátíðarnefnd sem verður formlega opinberuð á hátíðarkvöldinu.
Veislustjóri er ekki framandi fyrir Hornafirðinga enginn annar en húmoristinn og frumkvöðullinn úr Suðursveit Ari Þorsteinsson. Það er ekki að efa að þarna verður flæðandi fjör sem ekki fjarar út fyrr en að líðandi óttu.





Skrifa athugasemd