Anna Lilja nýr starfsmaður í Ráðhúsi
Anna Lilja Ottósdóttir hefur verið ráðinn á fjármálasvið Sveitarfélagsins í stað Luciar Óskarsdóttur, sem áður auk, almennra skrifstofustarfa, sá um afgreiðslu Ráðhússins og greiddi götu þeirra sem þangað áttu erindi. Um er að ræða 100 % stöðugildi. Anna Lilja er fædd á Vestfjörðum, nánar til tekið á Patreksfirði og ólst upp á Bíldudal, en hefur búið hér á Hornafirði síðastliðin 15 ár. Hún útskrifaðist á skrifstofubraut FAS s.l. vor, en áður hefur hún meðal annars. unnið hjá Sveitarfélaginu við störf í Sundlauginni og á leikskólanum Lönguhólum, auk þess sem hún hefur unnið við önnur þjónustu- og verslunarstörf. Hún er gift Birni J Ævarssyni og eiga þau hjónin 2 börn.
Lucia gegnir nú skrifstofu- og bókhaldstörfum á fjármálasviði sem áður var í höndum Guðrúnar Jónsdóttur, sem hefur verið ráðin til starfa hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Anna Lilja hóf störf í fyrr í þessum mánuði hjá Sveitarfélaginu og óskum við henni velfarnaðar í starfi.





Skrifa athugasemd