Össur ráðinn á tækni- og umhverfissvið
Össur Imsland hefur verið ráðinn á tækni- og umhverfissviðs Sveitarfélagsins í stað Vals Sveinssonar, sem hætti störfum í júní s.l. Um er að ræða 100 % stöðugildi. Össur er borinn og barnfæddur Hornfirðingur og hefur lengst af búið hér á Hornafirði fyrir utan námsár sín í Reykjavík og í Danmörku.Össur er menntaður húsasmiður frá Iðnskólanum í Reykjavík og rak á tímabili byggingarfyrirtækið Imstak ehf, hér á Höfn með bróður sínum, Birni Imsland sem einnig starfar á tæknideild sveitarfélagsins. Hann öðlaðist meistararéttindi við Tækniskóla Íslands þar sem hann stundaði nám, en hélt síðan til Óðinsvé, þar sem hann lauk prófi nú í júlí s.l. sem byggingarfræðingur. Á skólagöngu sinni hefur Össur oftar en einu sinni verið verðlaunaður fyrir framúrskarandi árangur.
Össur hefur störf í dag hjá Sveitarfélaginu og óskum við honum velfarnaðar í starfi.




Skrifa athugasemd