Nýr starfsmaður í Ráðhúsi
Borgþór Freysteinsson hefur verið ráðin í stöðu eldvarnareftirlitsmanns hjá sveitarfélaginu í stað Ragnars Imslands sem gegnt hafði stöðunni til fjölda ára. Um er að ræða 60 % stöðugildi. Borgþór er borinn og barnfæddur Hornfirðingur, alinn upp í Hagartúninu. Hann er menntaður mjólkurfræðingur og vann við það í fjölda ára auk annara starfa s.s. sjúkraflutningsmaður og lögregluþjónn. Borgþór hefur starfað hjá Slökkviliði Hornafjarðar frá 1988 og tekið þátt í flest öllum námskeiðum sem þar hafa verið í boði, auk þess sem hann hefur farið til Finnlands og lokið þar eiturefnanámskeiði.
Borgþór hefur einnig verið ráðinn sem heilbrigðisfulltrúi hjá heilbrigðiseftirliti Austurlands í hlutastarfi. Borgþór er kvæntur Ingu Jenny Reynisdóttir og eiga þau þrjú börn.





Skrifa athugasemd