Fréttir
Höfn
Höfn
Séð frá Hótel Höfn á góðum sumardegi (úr myndasafni)

12.04.2005 Fréttir

Auglýst eftir fólki í sumarstörf

Sveitarfélagið auglýsir nú eftir fólki í sumarstörf eins og undanfarin ár, um er að ræða starf verkstjóra vinnuskólans en það starf felst í stjórnun hans, skipulagningu og umsjón verkefna í samráði við deildarstjóra tækni- og umhverfissviðs Hornafjarðar. Æskilegt er að umsækjendur í starfið séu 20 ára eða eldri, hafi uppeldismenntun og/eða reynslu af umgengni við unglinga. Einnig er reynsla af stjórnun verkefna og almennum garðyrkjustörfum æskileg. Auglýst eftir starfsmanni sem sér um flokksstjórn í vinnuskólans á Höfn og í Nesjum, það starf felst í að vinna með unglingum í umhirðu grænna svæða sveitarfélagsins. Umsækjendur þurfa helst að vera 20 ára eða eldri, æskilegt er að þeir hafi uppeldismenntun og/eða reynslu af umgengni við unglinga og er reynsla af almennum garðyrkjustörfum æskileg.

Síðan eru störf við slátt og þar þurfa umsækjendur að vera 16 ára eða eldri. Starfið felst í slætti á opnum svæðum, einkagörðum og almennri garðyrkju. Unnið er með m.a. sláttubíl, sláttuvélar og vélorf.

Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu bæjarfélagsins og ber að skila umsóknum fyrir 22. apríl n.k. Nánari upplýsingar veitir deildarstjóri tækni- og umhverfissviðs í síma 470 8000

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica