Lán frá Íslandsbanka
Staðfesting bæjarstjórnar
Borin var upp til staðfestingar bæjarstjórnar lánasamningur milli Sveitarfélagsins og Íslandsbanka. Lánsfjárhæð er 125 milljónir kr. Lánið er verðtryggt miðað við vísitölu neysluverðs og ber fasta 6,9 % vexti. Lánstími er 10 ár en möguleiki er á uppgreiðslu eftir 5 ár.
Bæjarstjórn samþykkti lánasamninginn með 6 atkvæðum 1 sat hjá.




Skrifa athugasemd