Fréttir
Krosseyjarbakkinn í Hornafjarðarhöfn
Krosseyjarbakkinn í Hornafjarðarhöfn

19.02.2005 Fréttir

Atvinnulíf á norðurslóðum

Fimmtudaginn 24. febrúar kl. 20-22 verður málþing í Nýheimum á Höfn um atvinnumál á norðurslóðum. Fjallað verður um hvernig jaðarbyggðum í Færeyjum, Íslandi og Noregi hefur tekist að laga sig að breyttum atvinnuháttum. Efnið er áhugavert því gerður er samanburður á reynslu samfélaga víðsvegar á norðurslóðum. Þess vegna er fróðlegt að vita hvort þau vandamál sem Hornfirðingar glíma við séu einkennandi fyrir aðrar norðlægar byggðir eða einsdæmi. Á málþinginu mun Unnur Dís Skaptadóttir, dósent við Háskóla Íslands, gera grein fyrir helstu niðurstöðum samnorrænnar rannsóknar um efnið sem birtar voru í bókinni Innovations in the Nordic Periphery.

Rannsóknin snertir Hornfirðinga beint enda eru tekin dæmi í bókinni um tilraunir þeirra til að bregðast við breytingum í atvinnulífi, m.a. með uppbyggingu Nýheima og Frumkvöðlaseturs. Á haustdögum 2004 var haldið málþing á eyjunni Röst í Norður-Noregi. Þangað fóru þrír fulltrúar frá Hornafirði, Ari Þ. Þorsteinsson, Gísli Sverrir Árnason og Sigurður Mar Halldórsson.

Á málþinginu mun Ari Þ. Þorsteinsson fjalla um leiðir til nýsköpunar í atvinnulífi. Þá mun Sigurður Mar fjalla um hvort reynsla hans af frumkvöðlastarfi sé á einhvern hátt sambærileg við það sem gerist í álíka stórum samfélögum í Noregi og Færeyjum . Að lokum gerir Unnur Dís grein fyrir rannsóknarniðurstöðunum. Rúmur tími mun verða fyrir umræður í lokin. Gísli Sverrir Árnason verður fundarstjóri.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica