Fjárhagsáætlun 2003
1. umræða
Bæjarstjóri fylgir áætluninni úr hlaði og dreifir ítarlegri greinargerð þar að lútandi. Helstu tölur í áætlun sveitarsjóðs eru að skatttekjur eru áætlaðar 657,7 milljónir og rekstrargjöld 595,9 milljónir. Reksturinn skilar því afgangi upp á 61,8 milljón. Stofnbúnaður og styrkir eru áætlaðir 25,7 milljónir og framkvæmdir 39,3 milljónir. Heildargjöld munu því nema 660,9 milljónum og niðurstaða áætlunarinnar er 3,2 milljónir í halla. Afborganir langtímalána verða 85 milljónir og tekin verða ný lán að upphæð 59 milljónir. Gert er ráð fyrir því að peningaleg staða verði neikvæð um 460 milljónir sem er 70,01 % af skatttekjum.




Skrifa athugasemd