Fréttir
Tæknideildin Helgi Már og Valur Sveins við tillöguna að breytingu á aðalskipulaginu
Tæknideildin Helgi Már og Valur Sveins við tillöguna að breytingu á aðalskipulaginu
Tæknideildin Helgi Már og Valur Sveins við tillöguna að breytingu á aðalskipulaginu

24.09.2004 Fréttir

Auglýsing á tillögum að beytingu á aðalskipulagi

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar auglýsir nú tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 1998?2018. Breytingin felst í að fyrri landnotkun á svæðinu neðan þjóðvegs nr. 1 við Freysnes í Öræfum verður breytt þannig að hefðbundin landbúnaðarsvæði, beitarlönd og ræktuð tún auk svæðis til sérstakra nota er tengdust ferðaþjónustu á svæðinu verður breytt þannig að aukið verður við opin svæði til sérstakra nota, nýtt svæði verður fyrir frístundabyggð og gert verður ráð fyrir litilli íbúðarbyggð á svæðinu. Breytingartillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum Hornafjarðar að Hafnarbraut 27 frá og með deginum í dag og til föstudagsins 22. október 2004.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna, eigi síðar en 5. nóvember 2004. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Hornafjarðar, Hafnarbraut 27. Hver sem eigi gerir athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

Einnig hefur Sveitarfélagið samkvæmt 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, auglýst, til kynningar, tillaögu að deiliskipulagi á frístundabyggð og byggingarreit fyrir slökkvistöð og björgunarskýli í landi Skaftafells 2, Freysnesi í Öræfum. Tillagan nær til landsvæðis suðvestan þjóðvegar 1 og eru mörk svæðisins, þjóðvegur nr. 1 til norðausturs, landamörk Skaftafells 2 til austurs, Skaftafellsá til vesturs og mörk Freysness til norðvestur, alls um 39,0 ha.

Skipulagstillagan liggur frammi á bæjarskrifstofu Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, Höfn á venjulegum skrifstofutíma, og í Hofgarði í Öræfum, á venjulegum opnunartíma þar, frá 24. september 2004 til 22. október 2004.

Athugasemdum skal skila á bæjarskrifstofur Hornafjarðar í síðasta lagi 5. nóvember 2004, og skul þær vera skriflegar. Hver sá, sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests, telst henni samþykkur. Undir þetta ritar Bæjarstjóri Albert Eymundsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica