Fréttir
Hjalti Þór Vignisson
Hjalti Þór Vignisson
Hjalti Þór Vignisson

14.09.2004 Fréttir

Fyrir okkur er Hornafjörður draumastaðurinn

Hornfirðingurinn Hjalti Þór Vignisson var valinn úr hópi tólf umsækjenda í starf framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs hjá Sveitarfélaginu Hornafirði. Hjalti lauk í vetur námi í stjórnmálafræði og hefur hann störf næstkomandi mánudag. Hjalti bjó í Reykjavík frá 19 ára aldri en kom alltaf heim á sumrin m.a. til að spila knattspyrnu og á hann að baki yfir 100 deildarleiki fyrir Sindra. Síðustu þrjú árin hefur hann síðan búið í Reykjavík og erlendis. Hjalti segist þess fullviss að mjög holt sé fyrir ungt fólk að fara að heiman og kynnast nýjum stöðum utanlands og innan og víkka þannig sjóndeildarhringinn, þá er maður svo tilbúinn að koma heim aftur. Fyrir okkur er Hornafjörður draumastaðurinn og við Guðrún, konan mín, og Salvör Dalla, litla dóttirin, erum alsæl að vera komin aftur hingað heim. Hjalti segist hlakka til að takast á við nýja starfið og núna ætla þau að fara að leita að húsnæði til að kaupa og búið er að fá leikskólapláss fyrir dótturina sem er á öðru árinu.

Albert bæjarstjóri hafði þetta að segja um ráðninguna: "Mér þykir afskaplega vænt um að þegar unga og efnilega fólkið okkar vill snúa heim eftir nám og er tilbúið að leggja sitt af mörkum til að efla og bæta samfélagið hér. Þess vegna er ég bæði ánægður og stoltur yfir að hafa fengið tækifæri til að ráða í krefjandi ábyrgðarstarf ungan, metnaðarfullan og efnilegan heimamann. Mér finnst mikilvægt að ungt fólk fái þau skilaboð að þeir sem eru áræðnir og sýna ábyrgðartilfinningu fá tækifæri til að takast á við verðug verkefni og þeir eru eftirsóknarverðir og njóti trausts samfélagsins. Ég er sannfærður að af mörgum hæfum umsækjendum er Hjalti besti kosturinn þegar á allt er litið, bæði í starfið og fyrir samfélagið í heild. Þrátt fyrir ungan aldur treysti ég honum fullkomlega til að leysa starfið vel af hendi. Við hér fólkið "á besta aldri" í Ráðhúsinu viðurkennum fúslega að við hlökkum til að fá Hjalta til samstarfs með nýjar og ferskar hugmyndir eins og alltaf fylgja áhugasömu ungu fólki með frumkvæði.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica