Stofnun hjólabretta og línuskautafélags
Æskuliðs- og tómstundaráð
Æskuliðs og tómstundarráð kannar nú áhuga krakka á Hornafirði á jaðaríþróttum og að þessu sinni er það hjólabretti og línuskautar. Fyrirhugað er að stofna klúbb og í framhaldi af því verður fenginn sérfræðingur í slíkum jaðaríþróttamálum sem heimsækir klúbbinn til skrafs og ráðagerðar þar sem m.a. verða skoðuð þau svæði sem koma til greina að setja upp brautir fyrir þessar íþróttir. Borist hefur erindi frá Rauðakrossdeildinni á Höfn þar sem segir að komið hafi til tals að deildin gefi brettapalla fyrir þá krakka sem eru á hjólabrettum hér. Haukur Þorvaldsson æskulýðsfulltrúi segir að það sé vaxandi áhugi á jaðaríþróttum hér og nefndi hann sem dæmi stofnun Mótorkross klúbbsins, Litboltafélagið og þá sem sigla um fjörðinn á kajak.
Þeir krakkar sem hafa áhuga á hjólabrettum og línuskautum er hvattir til að hafa samband við Hauk í síma 470 8000 eða senda honum tölvupóst á haukur@hornafjordur.is





Skrifa athugasemd