Líkamsræktartæki til sölu
Til sölu eru líkamsræktartæki í eigu sveitarfélagsins sem notuð hafa verið í Orkuverinu við Hafnarbraut 34. Hægt er að fá upplýsingar og nálgast lista yfir tækin á bæjarskrifstofum Hornafjarðar og sömuleiðis að semja um tíma til að skoða tækin.
Óskað er eftir tilboðum í tækin í einum heildarpakka sem verður fyrsti valkostur. Hægt að gera tilboð í einstaka tæki og verða þau tilboð tekin til skoðunar fáist ekki viðunandi tilboð í heildarpakkann.
Seljandi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Tilboð skulu berast undirrituðum, í lokuðu umslagi merkt Líkamsræktartæki – tilboð, fyrir kl. 16:00, miðvikudaginn 28. apríl og verða þau opnuð þá í fundarsal Ráðhúsins í viðurvist þeirra sem þess óska.
Albert Eymundsson
Bæjarstjóri Hornafjarðar




Skrifa athugasemd