Upplýsingamiðstöð fyrir ferðaþjónustu í Nýheimum
Ákveðið er að upplýsingamiðstöð fyrir ferðaþjónustuna verði opnuð í Nýheimum í maí. Bæjarstjórn lét kanna þann möguleika að upplýsingamiðstöðin yrði í umsjón Menningarmiðstöðvar og yrði til húsa í Nýheimum, þar sem hún væri vel staðsett. Gísli Sverrir Árnason forstöðumaður Menningarmiðstöðvarinnar er samþykkur því að upplýsingamiðstöðin verði í Nýheimum enda leiðir það til betri nýtingar á húsnæði og starfsfólki. Ljóst er að umferð um Nýheima mun aukast og þessi starfsemi gæðir húsið auk þess auknu lífi sem er í samræmi við upphaflega hugmyndafræði þegar ákvörðun um byggingu Nýheima var tekin. Sagðist hann líta á þetta sem sameiginlegt markmið Menningarmiðstöðvar og sveitarfélagsins.
Áætlað er að stofnkostnaður vegna þessara breytinga sé um 800 þúsund kr. og mun samningurinn, sem undirritaður verður á næstunni gilda næstu þrjú ár. Á fundi bæjarstjórnar var rætt um mikilvægi þess að góð samvinna væri við fyrirtæki í ferðaþjónustu um starfsemi upplýsingamiðstöðvar og fram kom almenn ánægja með þá ákvörðun að hún verði rekin með þessum hætti.





Skrifa athugasemd