Fréttir
leikskólinn Óli Prik
Leikskólinn Óli Prik
Leikskólinn Óli Prik

02.04.2004 Fréttir

Starfsemi Óla priks flytur út á Höfn

Á fundi Bæjarstjórnar Hornafjarðar í gær var tekin ákvörðun um að leikskólanum Óla Prik skyldi lokað og starfrækslu hans hætt við lok skólaársins sem er um miðjan júlí. Lokun skólans var samþykkt með 5 atkvæðum, 1 sat hjá og fulltrúi Kríunnar greiddi atkvæði gegn lokuninni. Miklar umræður hafa verið um að loka skólanum og sendu foreldrar þeirra 11 barna sem í skólanum eru bæjarstjórn bréf þar sem lokuninni var mótmælt og m.a. segir þar; "Fyrir okkur þá sameinar Óli Prik það sem við viljum sjá í leikskóla fyrir börnin okkar, blandaður lítill leikskóli í rólegu umhverfi í sveit."

Frá árinu 1998-2003 hefur orðið veruleg fækkun í hópi yngstu árganga í sveitarfélaginu þ.e. aldurshópnum á 1.ári til 5 ára, fækkun um 20%. Í ársbyrjun 2001 var leikskólinn Krakkakot tekinn í notkun og við það fjölgaði leikskólaplássum verulega. Fyrsta ár þessa nýja leikskóla var nýting góð en hefur síðan dregið úr henni. Í bókun á fundi bæjarráðs segir: "Núna eru alltaf laus pláss í leikskólum sveitarfélagsins og við þær aðstæður er rökrétt að nýta þá leikskóla þar sem aðstæður eru bestar, bæði hvað varðar húsnæði og uppeldisaðstæður."

Á fundinum nefndi bæjarstjóri m.a. að á síðasta ári hefðu börn á Óla Prik farið tvisvar í viku í Krakkakot til að undirbúa sig fyrir grunnskólagönguna og þrátt fyrir að ýmislegt sé gert með þessum börnum í Óla Prik fái þau aldrei jafngóða þjónustu að þessu leyti og þau börn sem eru í Krakkakoti. Bæjarstjóri kynnti undirskriftarsöfnun með nöfnum 148 einstaklinga þar sem lokun Óla Prik er mótmælt.
Skólanefnd hefur lagt til að leikskólanum Óla Prik verði lokað og leggur um leið áherslu á að viðkomandi börnum verði tryggð leikskólapláss í leikskólunum á Höfn.
Leikskólar á Höfn eru tveir, Lönguhólar og Krakkakot.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica