Fleiri karlar en konur á Hornafirði
Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru íbúar í Sveitarfélaginu Hornafirði 2.304 þann 31. desember 2003. Íbúum sveitarfélagsins hefur því fækkað um 28 á milli ára. Kynjaskipting í sveitarfélaginu er konum heldur í hag að margra mati, en konur eru 1.104 á móti 1.200 karlmönnum. Fjölmennasti árgangurinn er fæddur 1991, samtals 53 einstaklingar, 30 karlar og 23 konur. Fast á hæla þeim koma síðan þeir sem eru fæddir 1988 samtals 49 einstaklingar.
Íbúar í sveitarfélaginu 67 ára og eldri eru 253 samkvæmt sömu heimildum og eru karlarnir aðeins fleiri eða 129 á móti 124 konum.
Samkvæmt tölum Hagstofunnar mega Hornfirðingar búast við töluverðum veisluhöldum á árinu og því til staðfestingar má nefna að 43 íbúar verða fertugir, 26 verða fimmtugir, 21 íbúi verður sextugur, 13 verða sjötugir og 11 íbúar verða áttræðir.
Samkvæmt þjóðskrá 31. desember s.l. voru íbúar á Íslandi 290.570, sem er fjölgun um 0,7% milli ára. Karlar voru 145.401 en konur 145.169.





Skrifa athugasemd