Fréttir
Ragnar Frank og Egill Jónasson formaður umhverfisnefndar
Ragnar Frank og Egill Jónasson formaður umhverfisnefndar

06.02.2004 Fréttir

Ragnar Frank og þjóðgarðurinn í Skaftafelli hlutu umhverfisverðlaunin 2003

Auglýst var eftir tilnefningum í annað skipti til umhverfisverðlauna og þær tilnefningar sem bárust voru: Friðrik Jónsson bóndi Hraunkoti. Hann var tilnefndur vegna áratuga skógræktarstarfa í landi Hraunkots í Lóni og einstakrar umgengni við náttúruna. Þjóðgarðurinn í Skaftafelli vegna mjög góðrar aðkomu og aðgengi fyrir þá sem sækja þjóðgarðinn heim. Einnig komu nefndarmenn með tillögur að umhverfisverðlaunum og voru þær, Félag fuglaáhugamanna á Hornafirði fyrir kynningu á svæðinu og á undirbúningi að fuglaskoðunarstöð. Elín Sigríður Harðardóttir fyrir ötult starf við SD 21 á Hornafirði og starf með vistverndarhópa.

Nefndin var sammála að veita Ragnari Frank og þjóðgarðinum í Skaftafelli umhverfisverðlaun fyrir árið 2003 fyrir kynningar- og fræðslumál, bætt aðgengi og uppbyggingu almennt í þjóðgarðinum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica