Tilnefningar til menningarverðlauna
Á fundi Menningarmálanefndar miðvikudaginn 14. janúar s.l. voru lagðar fram tilnefningar til menningarverðlauna fyrir árið 2004. Eftirtaldir hlutu tilnefningar að þessu sinni:
Leikhópurinn Lopi fyrir öflugt leiklistarstarf ungmenna
Haukur H. Þorvaldsson fyrir áratuga starf að tónlistar- og menningarmálum
Ungmennafélag Öræfinga/ritnefnd fyrir útgáfu Félagsvinarins
Þorbjörg Arnórsdóttir fyrir vinnu við stofnun Þórbergsseturs
Parket fyrir tónlitarstarf fyrir ungt fólk
Aðstandendur sýningarinnar Með allt a hreinu fyrir metnaðarfulla skemmtidagskrá
Úthlutun styrkja
Menningarmálanefnd fór yfir þær umsóknir um styrki sem bæjarráð hafði sent nefndinni til umsagnar. Til úthlutunar að þessu sinni eru 1,300.000. kr.
Nefndin gerir tillögu um eftirfarandi úthlutun:
Karlakórinn Jökull 200.000 kr.
Kvennakór Hornafjarðar 200.000 kr.
Samkór Hornafjarðar 50.000 kr.
Barnakór Hornafjarðar 50.000 kr.
Vox Luminae 50.000 kr.
Leikfélag Hornafjarðar 200.000 kr.
Leikhópurinn Lopi 50.000 kr.
Magnús J. Magnússon 50.000 kr.
Harmoníkufélag Hornafjarðar 75.000 kr.
Lúðrasveit Hornafjarðar 75.000 kr.
Hljóðver/Parket 100.000 kr.
Listvinasjóður Hornafjarðar 200.000 kr.
Samtals 1,300.000 kr.





Skrifa athugasemd