Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 623
623. fundur
623. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 25. febrúar 2013 og hófst hann kl.16:15.
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Bryndís Bjarnarson , Upplýsinga og gæðastjóri .
Dagskrá:
|
1302004F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 32 |
||
|
Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
2. |
1302002F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 38 |
|
|
Björn Ingi tók til máls og benti á mál sem tengist endurskoðun á aðalskipulagi, þar sem nefndin er búin að fá margar fyrirspurnir um hótelbyggingar í sveitarfélaginu. Hann benti á að sveitarfélagið þarf að mynda sér skoðun og stefnu á þessum málaflokki. Ásgerður lagði til að allar nýjar óskir um breytingar á aðalskipulagi fari í aðalskipulagsvinnu sem nú þegar er í gangi. Árni tók undir að sveitarfélagið þyrfti að móta sér stefnu í þessum málum. Ásgerður spurði um lið 9. gjaldskrá nefndarinnar, Björn Ingi greindi frá því að nefndin sé búin að fara yfir gjaldskrána og niðurstaða vinnunar er hjálögð gjaldskrá. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
3. |
1301013F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 31 |
|
|
Björn Ingi tók til máls undir lið 5. og benti á að það er verið að samþykkja samning sem felur í sér fjárútlát. Reynir lagði til að bæjarráð fái samninginn til umfjöllunar á næsta fundi. Árni Rúnar tók til máls undir lið 2. þjónusta við börn í dreifbýli og fagnaði umræðunni. Einnig þakkaði hann fyrir svör við fyrirspurn sinni frá 28. janúar sem kom fram í 5 lið en benti á að honum þætti eðlilegt endurskoðun starfslýsinga færi fram í ljósi breyttrar stöðu á íþróttamiðstöð með tilkomu Bárunnar. Ásgerður tók einnig til máls undir þessum lið og leggur áherslu á að málið verði skoðað þegar eftirlitskerfið verður orðið virkt. Umræður um ungmennaráð, stefnt að fundi með bæjarstjórn og ungmennaráði með vorinu. |
||
|
|
||
|
4. |
201302075 - Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um kosningar til sveitarstjórna, 537. mál. |
|
|
Lagt fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
5. |
201302077 - Aðalfundur lánasjóðs sveitarfélaga 2013 |
|
|
Aðalfundurinn verður haldinn í tenglsum við landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga, Hjalti Þór Vignisson verður fulltrúi sveitarfélagsins á fudninum. |
||
|
|
||
|
6. |
201005046 - Deiliskipulag við Jökulsárlón |
|
|
Málinu vísað til umhverfis og skipulagsnefndar. |
||
|
|
||
|
7. |
201302083 - Erindi vegna skála í Eskifelli og skólahúss í Lóni |
|
|
Bæjarstjóra falið að fara yfir málið. Reynir lagði til að skólahúsið í Lóni verði auglýst ef það verður niðurstaðan að selja það. |
||
|
|
||
|
8. |
201302084 - Nýtt frumvarp til laga um stjórn fiskveiða |
|
|
Reynir lagði til að bæjarstjóra verði falið að fara yfir breytingar á frumvarpinu og senda bæjarráðsmönnum drög að umsögn í tölvupósti.
|
||
|
|
||
|
9. |
201302085 - Námskeið um byggðastefnu ESB í Brussel |
|
|
Lagt fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
10. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
|
|
|
||


