Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 620
620. fundur
620. fundur bæjarráðs Hornafjarðar
haldinn í ráðhúsi, 4. febrúar 2013 og hófst hann kl.16:15.
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
|
201212007 - Uppbygging félagssvæðis Akstursíþróttafélags A-Skaft. |
||
|
Reynir lagði fram tillögu um 3 m.kr. styrk til félagsins till uppbyggingar svæðisins á árinu 2013. Í umræðu bæjarráðs kom fram mikilvægi þess að félaginu yrði tryggt að það gæti gengið að umræddu svæði vísu til framtíðar, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Bæjarstjóra falið að móta samning um ofangreint auk þess sem þar sem kæmi fram vilji sveitarfélagsins til áframhaldandi uppbyggingar svæðisins gegn því að félagið legði til vinnuframlag á móti. Bæjarráð mun endanlega taka afstöðu til málsins þegar samningsdrög liggja fyrir. |
||
|
|
||
|
2. |
201209008 - Bílastæði við Mánagarð |
|
|
Lögð fram tillaga að hönnun stæðisins. Ákveðið að taka út rútustæði við þjóðveginn og þar yrði sett gras. Í framhaldi yrði ný kostnaðaráætlun og útlitsteikning send á bæjarráð. |
||
|
|
||
|
3. |
201301006 - Skipulag safna- og menningarmála |
|
|
Lagt fram bréf forstöðumanns Menningarmiðstöðvar dags 31.01.2013. Lögð fram drög að greinargerð frá bæjarstjóra um tillögu að skipulagsbreytingu safna- og menningarmála. Björn Ingi lagði áherslu á að kostnaðarbreytingar við skipulagsbreytingar lægju fyrir áður en málið kæmi fyrir bæjarstjórn. Rætt var um ráðningu bókasafns- og upplysingafræðings á bókasafnið og samstarf við Fas í því efni. Bæjarstjóra falið að rita svarbréf til forstöðumanns Menningarmiðstöðvar. Jafnframt að óska eftir lögfræðiáliti um næstu skref í ferlinu, með það að markmiði að fullgera þær skipulagsbreytingar sem lagður er grunnur að í framlagðri greinargerð bæjarstjóra. |
||
|
|
||
|
4. |
201301066 - Uppbygging og starfsemi í Vöruhúsi |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir áformum um að fullbúa aðstöðu fyrir kennslu í ljósmyndun á vegum FAS. Jafnframt rætt um samstarf við FAS og að fullgera þurfi samkomulag sem er í drögum áður en bæjarráð mótar afstöðu til uppbyggingar í húsinu til framtíðar. |
||
|
|
||
|
5. |
201301126 - Ósk um aukið stöðugildi á Krakkakoti |
|
|
Óskað eftir að fræðslustjóri mæti á næsta fund bæjarráðs til að fara yfir máilð. |
||
|
|
||
|
6. |
201109009 - Drög að reglum um girðingar við göngustíga og opin svæði |
|
|
Vísað til bæjarstjórnar. |
||
|
|
||
|
7. |
201301130 - Skipting fjár til atvinnuþróunarfélaganna 2013 |
|
|
Reynir kynnti nýjar reglur um úthlutun fjár. |
||
|
|
||
|
8. |
201301115 - Ósk um styrk - Saman hópurinn 2013 |
|
|
Vísað til bæjarstjóra. |
||
|
|
||
|
9. |
201301113 - Ósk um umsögn á útgáfu rekstrarleyfis fyrir gististað að Víkurbraut 2 |
|
|
Vísað til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd. Óskað eftir umfjöllun í nefndinni um vaxandi fjölda húsa sem tekin eru úr fastri búsetu í gististaði. |
||
|
|
||
|
10. |
201301112 - Ósk um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfis f. Jökulsárlón ehf. |
|
|
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins. |
||
|
|
||
|
11. |
201301123 - Fundargerðir samtaka sjávarútvegssveitarfélaga |
|
|
Til kynningar. |
||
|
|
||
|
12. |
201212018 - Ósk um stofnun landssvæðis (þjóðlendu) á Mýrum og svæði milli Hánípu, Höfða og jökuls |
|
|
Bæjarstjóra falið að fá lögfræðiálit á málinu. |
||
|
|
||
|
13. |
201212019 - Ósk um stofnun landssvæðis (þjóðlendu)Hoffellslambatungur |
|
|
Bæjarstjóra falið að fá lögfræðiálit á málinu. |
||
|
|
||
|
14. |
201212020 - Ósk um stofnun landssvæðis (þjóðlendu)Hafrafell |
|
|
Bæjarstjóra falið að fá lögfræðiálit á málinu. |
||
|
|
||
|
15. |
201212021 - Ósk um stofnun landssvæðis (þjóðlendu)hluti Vatnajökuls í Nesjum |
|
|
Bæjarstjóra falið að fá lögfræðiálit á málinu. |
||
|
|
||
|
16. |
201212022 - Ósk um stofnun landssvæðis (þjóðlendu)hluti Vatnajökuls í Öræfum |
|
|
Bæjarstjóra falið að fá lögfræðiálit á málinu. |
||
|
|
||
|
17. |
201212023 - Ósk um stofnun landssvæðis (þjóðlendu)hluti Vatnajökuls í Suðursveit |
|
|
Bæjarstjóra falið að fá lögfræðiálit á málinu. |
||
|
|
||
|
18. |
201212024 - Ósk um stofnun landssvæðis (þjóðlendu)hluti Vatnajökuls í Lóni |
|
|
Bæjarstjóra falið að fá lögfræðiálit á málinu. |
||
|
|
||
|
19. |
201212025 - Ósk um stofnun landssvæðis (þjóðlendu)hluti Vatnajökuls í Lónsöræfum |
|
|
Bæjarstjóra falið að fá lögfræðiálit á málinu. |
||
|
|
||
|
20. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
|
|
|
||


