Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 617
617. fundur
617. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 14. janúar 2013 og hófst hann kl.16:15.
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG) framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson (HIE) embættismaður
Fundargerð ritaði: Ásta H. Guðmundsdóttir, fjármálastjóri.
Dagskrá:
|
1212012F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 35 |
||
|
Ásgerður spurði um breytingu á sorphirðu í sveitarfélaginu tveggja tunnu kerfi og endurvinnslu, Haukur upplýsti um stöðu málsins. Björn ræddi þær breytingar sem komu frá á fundinum um deiliskipulag á Jökulsárlóni, Hjalti upplýsti um málið. Einnig rætt um deiliskupulag vegna akstursíþróttabrautar.
Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
2. |
201301036 - Stofnbúnaður 2013, Stofnanir Sveitarfélagsins Hornafjarðar. |
|
|
Lögð fram drög að úthlutun dags. 10. janúar 2013 Björn Ingi ræddi um kaup á bifreið fyrir tæknideild og umsjón með Bárunni. Umræðu um Báruna frestað þar til síðar á fundinum. Ásgerður benti á hvort fatnaður fyrir slökkvilið ættu ekki heima í rekstrarramma.
Bæjarráð samþykkir framlagðan lista. |
||
|
|
||
|
3. |
201301006 - Málefni Menningarmiðstöðvar |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir fundum með starfsfólki Menningarmiðstöðvar. Gerði grein fyrir drögum að erindi sem senda eigi starfsmönnum í kjölfarið. Bæjarráð felur bæjarstjóra áframhaldandi vinnu að málinu, og senda umrætt erindi. Björn Ingi taldi rétt að öllum starfsmönnum Menningarmiðstöðvar yrði sagt upp og tíminn notaður til að endurskipuleggja starf í menningar- og safnamálum með hlutaðeigandi aðilum. |
||
|
|
||
|
4. |
201203093 - Skipurit fyrir sveitarfélagið |
|
|
Staða málsins kynnt eftir rýni KPMG og kynningu á forstöðumannafundi, málinu vísað til áframhaldandi vinnu. |
||
|
|
||
|
5. |
201010037 - Refaveiðar í Sveitarfélaginu Hornafirði |
|
|
Bæjarráð samþykkir framlagðar reglur. |
||
|
|
||
|
6. |
201210013 - Umsóknir um styrki 2013 |
|
|
Starfsmönnum falið að koma með tillög að úthlutun. |
||
|
|
||
|
7. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
|
|
Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar í bæjarráði vegna reksturs Bárunnar, nýs fjölnota knatthúss í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar 1. Hvaða aðili innan stjórnkerfis sveitarfélagsins ber ábyrgð á umsjón og eftirliti með starfsemi og nýtingu fjölnota knatthússins, Bárunnar? Forstöðumaður íþróttmannvirkja. Unnið er að skipulagi umsjónar og eftirlits en því ekki lokið. Forstöðumaður íþróttamannvirkja, fræðslustjóri og framkvæmdastjóri UMF Sindra hafa komið að þeim undirbúningi. Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar í bæjarráði vegna reksturs Mánagarðs, félagsheimilis og íþróttahúss 1. Hvaða aðili innan stjórnkerfis sveitarfélagsins ber ábyrgð á umsjón og eftirliti með starfsemi og nýtingu Mánagarðs? Forstöðumaður íþróttamannvirkja. Í ljósi slyss sem varð í Mánagarði í desember var ákveðið að fara í endurskoðun á umsjón með húsinu. Jafnframt hefur bæjarstjóri óskað eftir því við tryggingarfélag sveitarfélagsins að það fari yfir orsakir umrædds slyss. Bæjarráð óskar eftir að skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd taki umsjón og eftirlit með ofangreindum húsum til nánari umræðu. Árni Rúnar Þorvaldsson Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og áheyrnarfulltrúi í bæjarráði |
||
|
|
||


