Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 616
616. fundur
616. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 7. janúar 2013 og hófst hann kl.16:15.
Fundinn sátu:
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson Upplýsinga og gæðastjóri
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
|
1212001F - Hafnarstjórn Hornafjarðar - 151 |
||
|
Björn Ingi ræddi um dælulagnir og kostnað við þær. Björn Ingi spurði hvort skemmtiferðarskip myndu koma á þessu ári, engin skip hafa boðað komu sína á árinu 2013 en einhver skip eru bókuð 2014. Bæjarráð tekur undir bókun hafnarstjórnar varðandi gámasvæðið. Árni spurði um möguleg tækjakaup hafnarinnar vegna mælinga á grynnslum og í höfninni. Reynir upplýsti um málið. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
2. |
1212006F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 29 |
|
|
Árni spurði um fjórða lið varðandi leikskólagöngu barna í sveitum. Málið er í vinnslu hjá skóla, íþrótta og tómstundanefnd. Umræður um öryggismál barna í skólaakstri. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
3. |
1212004F - Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 28 |
|
|
Björn Ingi spurði hvort það gildi sömu reglur um yfirdrátt HSSA og aðrar heilbrigðisstofnanir, bæjarstjóri mun svara því máli á næsta fundi bæjarráðs. Einnig spurði hann um munnlegt samkomulag um 24 rými á stofnunni hvort það myndi duga til að ná endum saman, Hjalti svaraði því játandi og sagði að HSSA hefði verið vel rekið sl. ár þrátt fyrir samdrátt í tekjum. Þá spurði Björn Ingi um byggingaráform HSSA hvernig eigi að fjármagna bygginguna. Hjalti gerði grein fyrir að samþykki Velferðarráðuneytis þurfi að liggja fyrir áður en framkvæmdasjóður aldraðra fær málið. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
4. |
201212058 - Fundargerð Sambands ísl. sveitarfélaga 802. fundur |
|
|
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
5. |
201212041 - Reglur um skólaakstur |
|
|
Umræða um reglur skólaaksturs, bæjarráð samþykkir reglur um skólaakstur. |
||
|
|
||
|
6. |
201212055 - Ósk um umsögn á endurútgáfu rekstrarleyfis fyrir Fosshótel Lindarbakka |
|
|
Samþykkt. |
||
|
|
||
|
7. |
201212056 - Ósk um umsögn á endurútgáfu rekstrarleyfis fyrir Kistugil ehf. |
|
|
Samþykkt. |
||
|
|
||
|
8. |
201301004 - Staða bæjarsjóðs 30.11.2012 |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir stöðu bæjarsjóðs þann 30. nóvember 2012. |
||
|
|
||
|
9. |
201210013 - Umsóknir um styrki 2013 |
|
|
Starfsmanni falið að gera samanburð á umsóknum 2013 og umsóknum og úthlutunum ársins 2012. |
||
|
|
||
|
10. |
201204033 - Fjarskiptamál í dreifbýli |
|
|
Bæjarstjóra falið að gera samning um kaup á fjarskiptakerfi Martölvunnar og leggja hann fyrir bæjarráð. |
||
|
|
||
|
11. |
201301006 - Málefni Menningarmiðstöðvar |
|
|
Bæjarstjóri kynnti málið, honum er falið að vinna áfram í málinu. |
||
|
|
||
|
12. |
201211056 - Opnun tilboða í fráveitu við Miðós |
|
|
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 7.258.450. kr.
Þau fyrirtæki sem buðu í framkvæmdina voru: JP Vélar (frávikstilboð) 9.193.101.kr. JP Vélar 9.684.746.kr. Rósaberg ehf. 6.787.750.kr. Ólafur Halldórsson 8.238.239.kr. Ólafur Halldórsson (frávikstilboð) 7.414.551.kr.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Rósaberg ehf. 6.787.750.kr. sem er 93.5% af kostnaðaráætlun.
|
||
|
|
||
|
13. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
|
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.19:30


