Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 612
612. fundur
612. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 26. nóvember 2012 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson embættismaður
Fundargerð ritaði: Bryndís Bjarnarson , Upplýsinga og gæðastjóri.
Dagskrá:
1. 1211010F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 29
Björn Ingi ræddi um hvort endurskoða þurfi reglur um Atvinnu og ransóknarsjóð í ljósi inngöngu í AÞS.
Bæjarráð samþykkti að 3 liður, samþykktir Atvinnu og ransóknarsjóðs verði tekinn fyrir á næsta bæjarráðsfundi.
Fundargerð samþykkt.
2. 1211007F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 28
Ásgerður benti á lið 8 í fundargerðinni málinu vísað til bæjarstjóra.
Árni spurði um lið 13 um forvarnir í Sveitarfélaginu Hornafirði og hvort það væru til tölur um hvernig stöðu vímuefnaneyslu ungmenna í sveitarfélaginu. Ásgerður benti á að ný könnun um Hagi og líðan ungmenna var gerð á landsvísu og er aðgengileg á vef sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
Ríki Vatnajökuls v/ auka starfsmanns.
3. 201211064 - Ríki Vatnajökuls -Beiðni um aukaframlag - gæðamál
Stjórn og framkvæmdastjóri Ríkis Vatnajökuls (RV) mættu á fundinn.
Sigríður Dögg Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri RV.
Laufey Guðmundsdóttir, stjórnarkona RV.
Birna Sigurbjörnsdóttir, formaður stjórnar RV.
Ari Þorsteinsson, stjórnarmaður RV.
Þorvarður Árnason, Rannsóknarsetur HÍ.
Hjalti kynnti málið og gerði grein fyrir að Ríki Vatnajökuls og Háskólasetrið hafi beðið um aukafjárveitingu m.a. til að ráða auka starfsmann.
Sigríður Dögg fór yfir svarbréf við spurningum sem sveitarfélagið sendi á RV, þær voru byggðar á samningi við Ríki Vatnajökuls. Í svörum Sigríðar kom fram að ferðaþjónustan á svæðinu er í miklum vexti en mælingar vantar til að greina viðhorf og þarfir ferðamanna.
Spurningar og umræður varðandi tekjur, rekstur, rannsóknir, samstarf klasans og lengri ferðamannatíma.
Málið verður áfram í vinnslu.
4. 201210004 - Ný sorpgryfja
Reynir kynnti tilboð sem komu inn.
Þrjú tilboð bárust:
Litlahorn ehf. 15.682.088. kr. 73% af kostnaðaráætlun.
Rósaberg ehf. 15.422.070. kr. 71,8% af kostnaðaráætlun.
Jökulfell ehf. 15.860.600. kr. 73,9% af kostanðaráætlun.
Bæjarráð samþykkti að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
5. 200905103 - Tölvumál
Haukur Ingi Einarsson mætti á fundinn undir þessum lið, hann gerði grein fyrir stöðu stofnanna í tölvumálum hjá sveitarfélaginu. Bæjarráð samþykkir uppgreiðslu á rekstrarleigusamningnum og felur starfsmönnum að gera viðauka við fjárhagsáætlun 2012.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6. 201211015 - Umsókn um Framkvæmdaleyfi, Grjótnám í landi Stórulágar
Málið er í meðferð umhverfis og skipulagsnefndar og verður tekið fyrir í bæjaráði að því loknu.
7. 201211054 - Jarðhitaleit í Svínafelli í Öræfum
Hjalti gerði grein fyrir málinu.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar málinu til bæjarstjóra.
Tillaga Vegagerðar
8. 201005046 - Deiliskipulag við Jökulsárlón hugmyndir Vegagerðar.
Hjalti gerði grein fyrir málinu.
Umræður um hvaða áhrif verða ef vatninu er beint í Stemmu.
Óskað er eftir fundi með vegagerðinni um afleiðingar tilllögunnar.
9. 201101058 - Hátíðir og stærri menningarviðburðir á Hornafirði
Hjalti gerði grein fyrir málinu.
Umræður um framkvæmd á hátíðarhöldum í sveitarfélaginu og síðustu Humarhátíð.
Bæjarstjóra falið að hafa samband framkvæmdarstjóra Humarhátíðarinnar og taka saman minnisblað um hátíðina.
10. 201211056 - Breyting á frárennsli frá bræðslu, netaverkstæði og tengdum byggingum
Hjalti gerði grein fyrir málinu.
Kostnaðaráætlun lögð fram og samþykkt að setja í útboð.
11. 201211038 - Boðun aukaaðalfundar SASS 14. desember
Kjörbréf hafa verið send.
12. 201211055 - Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um sjúkratryggingar
Málinu vísað til stjórnar Heilbrigðistofnunar Suðausturlands.
13. 201211060 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins
Vísað til starfsmanna sveitarfélagsins og þeim falið að gera tilllögu að breytingum á gildandi samþykktum.
14. 201211061 - Leiðbeiningar um ritun fundargerða
Vísað til starfsmanna sveitarfélagsins og þeim falið að gera tilllögu að breytingum á gildandi samþykktum.
15. 201211043 - Gjaldskrár skóla-, íþrótta- og tómstunanefndar
Gjaldskráin samþykkt og vísað til síðari umræðu um fjárhagsáætlun.
16. 201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar fyrirspurnir bárust.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00


