Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 611
611. fundur
611. fundur bæjarráðs Hornafjarðar
haldinn í ráðhúsi, 19. nóvember 2012 og hófst hann kl.16:15.
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson (HIE) embættismaður
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
|
1211005F - hafnarstjórn Hornafjarðar - 150 |
||
|
Björn Ingi ræddi um ákvörðun hafnarstjórnar um að halda Faxeyrarhöfn inn á skipulagi. Kallaði eftir umræðu um kosti og galla þeirrar hugmyndar. Hjalti upplýsti að Gísli Viggósson hjá Siglingastofnun væri væntanlegur til staðarins. Bæjarráð telur mikilvægt að málið verði tekið upp við það tilefni Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
2. |
201207007 - Fjárhagsáætlun 2013 |
|
|
Jón Kristján Rögnvaldsson mætti á fundinn undir þessum lið. Fór yfir fjárhagsáætlun fyrir félagsmál. Einnig ræddi hann um niðugreiðslur vegna vistunar hjá dagforeldrum. Bæjarráð sammála um að vísa þeirri umræðu til félagsmálaráðs. Lagt fram yfirlit um áætlun til 2025 miðað við 300 m.kr. framkvæmdir á ári frá árinu 2014. Miðað við það munu langtímalán ekki hækka heldur lækka um 100 m.kr. Lagt fram skjal um drög að úthlutun stofnbúnaðar, dags. 14. nóvember 2013.
|
||
|
|
||
|
3. |
201003048 - Samningur við Hólabrekku ehf. |
|
|
Jón Kristján Rögnvaldsson mætti á fundinn undir þessum lið. Hjalti vék af fundi undir þessum lið. Jón upplýsti um stöðu mála. |
||
|
|
||
|
4. |
201211040 - Verðfyrirspurn vegna tölvukaupa fyrir grunnskóla Hornafjarðar |
|
|
Sveinbjörn Imsland og Haukur Ingi Einarsson mættu á fundinn undir þessum lið. Haukur Ingi og Sveinbjörn gerðu grein fyrir vinnu verðfyrirspurnar. Kom fram að mikil þróun er í notkun tölvubúnaðar í skólum. Fyrirhuguð er ráðstefna um þau mál í byrjun árs. Bæjarráð er sammála um að fresta kaupum á tölvubúnaði fyrir Grunnskólann. Bæjarráð óskar eftir heildstæðu yfirliti yfir ástand tölvubúnaðar og þörf á kaupum fyrir næstu misseri. |
||
|
|
||
|
5. |
201208037 - Útboð á raforkukaupum sveitarfélagsins |
|
|
Lagt fram minnisblað dags. 15. nóvember 2012 um orkukaup, unnið af Hauki Inga og Bjarna Jakobssyni. Í samantekt þeirra er gerð grein fyrir tveimur tilboðum í orkusölu til sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við HS Orku sem bauð lægst. |
||
|
|
||
|
6. |
200809009 - Náttúrustofa Suðausturlands |
|
|
Lögð fram drög að samninigi milli Skaftárhrepps og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um stofnun og rekstur Náttúrustofu. Lögð fram drög að samningi á milli umhverfis- og auðlindaráðuneytis og Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Bæjarstjóra falið að undirrita samningana, undirbúa stofnun stofunnar og í framhaldi að auglýsa eftir starfsfólki. |
||
|
|
||
|
7. |
201107009 - Staða og framtíð Vatnajökulsþjóðgarðs |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir stöðu mála er varða Vatnajökulsþjóðgarð. |
||
|
|
||
|
8. |
201211023 - Nýheimar 2012-2022 |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum við verkefnisstjóra Sóknaráætlunar og fundum með stofnunum í Nýheimum. Bæjarráð tekur málið fyrir á næsta fundi sínum. |
||
|
|
||
|
9. |
201204033 - Fjarskiptamál í dreifbýli |
|
|
Hjalti og Björn Ingi gerðu grein fyrir fundum með Vodafone og Orkufjarskiptum um fjarskiptamál. Björn Ingi ræddi um tæknilausnir sem tryggja samkeppnishæft netsamband. Bæjarráð felur bæjarstjóra áframhaldandi vinnu að málinu. |
||
|
|
||
|
10. |
201211031 - Rannsóknir á sjávarorku - samstarf við Valorku |
|
|
Lögð fram gögn um rannsóknir og þróun Valorku í nýtingu sjávarstrauma. Bæjarráð fagnar hugmyndum um prófun hverfla við Hornafjörð. |
||
|
|
||
|
11. |
201108002 - Landsmót unglinga 2013 á Hornafirði |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir stöðu málsins. Undirbúningur gengi vel en auka þurfa aðstöðu fyrir körfuknattleik vegna fjölda iðkenda. Sagði að nokkrar lausnir hafi verið skoðaðar meðal annars að að kaupa færanlegt gólf í knatthús þar sem tveir körfuknattleiksvellir gætu rúmast. Málið verður í áframhaldandi skoðun. |
||
|
|
||
|
12. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
|
|
|
||


