Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 609
609. fundur
609. fundur bæjarráðs Hornafjarðar
haldinn í ráðhúsi, 5. nóvember 2012 og hófst hann kl.16:15.
Fundinn sátu:
Björn Ingi Jónsson aðalmaður Ásgrímur Ingólfsson 1. varamaður Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri Bryndís Bjarnarson embættismaður
Fundargerð ritaði: Bryndís Bjarnarson, upplýsinga og gæðastjóri.
Haukur Ingi Einarsson sat fundinn frá 16:15 og vék af fundi kl. 17:00.
Dagskrá:
|
1210014F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 31 |
||
|
Björn Ingi greindi frá að á aðalskipulagstillögurnar hafi verið með of miklum áherslu á þéttingu byggðar. Hjalti greindi frá ástæðu þess að tillögurnar voru lagðar fram með þeim hætti. Umræður sköpuðust um þéttingu byggðar og skipulagsmál almennt. Fundargerð lögð fram, samþykkt. |
||
|
|
||
|
2. |
201211007 - Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga nr. 800 |
|
|
Fundargerðin lögð fram til kynningar. Björn Ingi nefndi að jákvætt væri að þar væri verið að fjallað um kostnaðaraskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga um refa og minnkaveiðar. Hann nefndi einig sjöunda lið um þriðja stjórnsýslustigið og hvernig það væri hugsað hvernig ætti að velja fulltrúa í slík samtök. Umræður sköpuðust um sameingingu sveitarfélaga í tengslum við umræðu um þriðja stjórnsýslustigið. |
||
|
|
||
|
3. |
201207007 - Fjárhagsáætlun 2013 |
|
|
Björn Ingi spurði um hvernig lántaka og fjárhagstöðu sveitarfélagsins og hvernig 10 ára áætlun myndi líta út miðað við 300 milljón kr. árlegar framkvæmdir á tímabilinu. Fundarmenn óska eftir að Haukur Ingi setji upp langtíma áætlun miðað við 300 milljón kr.árlegar framkvæmdir. |
||
|
|
||
|
4. |
201210058 - Tíu ára áætlun 2013 |
|
|
Lögð fram. |
||
|
|
||
|
5. |
201211001 - Staða bæjarsjóðs 30. september 2012 |
|
|
Staða bæjarsjóðs er samkvæmt áætlun, heildarniðurstaða hans er að skatttekjur hafa aukist, flestir málaflokkar eru á áætlun. |
||
|
|
||
|
6. |
201208037 - Opnun tilboða í raforkukaup sveitarfélagsins |
|
|
Haukur Ingi kom á fundinn og gerði grein fyrir tilboði tveggja raforku fyrirtækja í raforkaup sveitarfélagsins, ákvörðum um raforkukaup frestað til næsta fundar bæjarráðs. |
||
|
|
||
|
7. |
201204036 - Gamlabúð II. áfangi - útboð |
|
|
Björn Imsland mætti á fundinn undir þessum lið. Björn gerði grein fyrir II áfanga Gömlubúðar. Spurt var um ýmsa liði kostnaðaráætlunar, þar sem gert er ráð fyrir timburklæðningu að utan og ekki gert ráð fyrir lyftu. Samþykkt að bjóða út verkið Gamlabúð II áfangi. Starfsmönnum falið að sækja um styrk vegna framkvæmdanna í sjóð húsafriðunarnefndar. Hjalti fór yfir gögn um hugmyndir Vatnajökulsþjóðgarðs um uppbyggingu upplýsingastofu og fræðslusýningu. |
||
|
|
||
|
8. |
201209043 - Reglur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks á Hornafirði |
|
|
Málinu frestað. |
||
|
|
||
|
9. |
201105036 - Málefni strætó |
|
|
Bryndís gerði grein fyrir spurningum starfsmanna sem sendar voru á Strætó bs. og kvörtunarbréfi sem barst til bæjarfélagsins frá íbúa. Svarbréf barst frá framkvæmdastjóra Strætó bs.. Í bréfinu kom fram að nauðsynlegt sé að fræða starfsfólk sveitarfélagsins sem sér um miðasöluna. Einnig kynnti hún að eyðublað um niðurgreiðslur til námsmanna er komið á heimasíðuna og gjaldskrárhækkun sem mun taka gidli 1. desember. Björn Ingi gerði grein fyrir að samvkæmt upplýsingum sem fram komu á SASS þinginu að sveitarfélagið taki sjálft ákvörðun um hvar biðstöðvar eigi að vera í sveitarfélaginu. Reynir upplýsti að hann mun taka málið upp á næsta stjórnarfundi SASS. Bæjarráð er sammála um að biðstöðin verði færð á sama stað og sölustaður er á Höfn eða við Sundlaug Hafnar.
|
||
| 10. |
201009015 - Athugasemdir við deiliskipulag í Stafafellsfjöllum |
|
|
Lagt fram til kynningar. Málið er til umfjöllunar í umhverfis-og skipulagsnefnd. |
||
|
|
||
|
11. |
201210057 - Ósk um styrk til skráningar reiðleiða - kortasjá |
|
|
Málið verður tekið fyrir með öðrum styrkumsóknum sem berast bæjarráði á þessu ári. |
||
|
|
||
|
12. |
201211006 - Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um verndar- og orkunýtingaráætlun (flokkun virkjunarkosta og gerð orkunýtingaráætlunar), 3. mál. |
|
|
Bæjarráð tekur undir ályktun ársþings SASS um að virða beri niðurstöður fagnefndar um málið. bæjarráð bendir sérstaklega á mikilvægi orkunýtingar einstakra sveitarfélaga svo sem Skaftárhrepps. |
||
|
|
||
|
13. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
|
|
|
||


