Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 608
608. fundur
608. fundur bæjarráðs Hornafjarðar
haldinn í ráðhúsi, 29. október 2012 og hófst hann kl.16:15.
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
|
1210016F - Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 26 |
||
|
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum við Velferðarráðuneytið um samning við HSSA. Upplýsti að innheimtubréf hafi verið sent í kjölfarið. Björn Ingi lýsti því yfir að rétt hefði verið að upplýsa bæjarráð og stjórn HSSA að beðið hafi verið með að senda innheimtubréfið. Hjalti greindi frá því að á fundi með aðstoðarmanni ráðherra hafi verið farið yfir bréf sem sent var ráðherra í júníbyrjun en ekki ratað í hennar hendur. Því hafi bæjarstjóri ákveðið að bíða með sendingu innheimtubréfsins á meðan bréfið væri í skoðun aðstoðarmannsins. Bæjarráð vill þakka fráfarandi framkvæmdastjóra Guðrún Júlíu Jónsdóttir fyrir áralangt starf hjá HSSA og óskar henni velfarðnaðar á nýjum vettvangi. Um leið býður bæjarráði Matthildi Ásmundardóttur velkomna til starfa. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
2. |
1210018F - hafnarstjórn Hornafjarðar - 149 |
|
|
Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
3. |
1210013F - félagsmálaráð Hornafjarðar - 234 |
|
|
Bæjarráð óskar eftir að fá reglur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks á næsta fund. Rætt um ósk um kaup á hjólastólarampi og festingum á bifreið í skólaakstri. Ásgerður rifjaði upp tillögu sína um kaup á bíl með aðgengi fyrir fatlað fólk. Taldi að sú lausn sem nú væri á teikniborðinu væri mjög spennandi. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
4. |
201003048 - Samningur við Hólabrekku ehf. |
|
|
Hjalti vék af fundi undir þessum lið. Jón Kristján Rögnvaldsson mætti á fundinn undir þessum lið. Umræður um samningaviðræður sveitarfélagsins við fulltrúa Hólabrekku. Bæjarráð upplýst um framgang mála en leggur jafnframt áherslu á eftirfarandi atriði í tengslum við nýjan samning: · Að lögum samkvæmt skal Sveitarfélagið Hornafjörður ávallt koma að inntökuferli nýrra íbúa og að nýir íbúar fari ekki á sambýlið nema samþykki og þjónustumat sveitarfélagsins liggi fyrir. Þó verði haft samráð við fyrri þjónustuaðila vegna slíks mats þegar hægt er. · Að samningar náist milli viðkomandi þjónustusvæða vegna flutninga nýrra íbúa á sambýlið Hólabrekku í hverju tilviki, þannig að framlög í samræmi við þjónustuþörf berist ávallt með nýjum íbúum á meðan dvöl þeirra stendur. · Að fram fari óháð og viðurkennd úttekt á gæðum þjónustu við allt fatlað fólk í sveitarfélaginu. |
||
|
|
||
|
5. |
201209042 - Gjaldskrá og eyðublöð vegna heimaþjónustudeildar |
|
|
Jón Kristján Rögnvaldsson mætti á fundinn undir þessum lið. Gerði grein fyrir framlögðum gögnum sem gerð eru með fyrirmynd frá Akureyri. Upplýst að gjaldskrá verði sett á netið, bæði stjórnsýslunnar og HSSA. Bæjarráð samþykkir framlagða gjaldskrá. |
||
|
|
||
|
6. |
201207007 - Álagningareglur 2013 |
|
|
Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson komu inn á fundinn undir þessum lið. Bæjarráð samþykkir eftirfarandi álagningarreglur: Útsvar 14,48%, hámark er 14,48% Bæjarráð samþykkir framlagðar álagningareglur og vísar þeim til bæjarstjórnar. |
||
|
|
||
|
7. |
201207007 - Fjárhagsáætlun 2013 - tillaga til fyrstu umræðu |
|
|
Ásta Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson mættu á fundinn undir þessum lið. Björn Ingi spurði um eignfærslu í B hluta og sérstaklega háa upphæð í gagnaveitu. Einnig spurði hann um upphæð á kröfum á eigin fyrirtæki. Starfsmenn munu yfirfæra áætlun um eignfærslur og laga áætlun í samræmi við það áður en gögnin verða send bæjarstjórn. Farið yfir skjal sem sýnir breytingar á milli ára. Komu fram spurningar og ábendingar um ýmiss mál sem teknar verða upp með forstöðumönnum. Sá fundur er fyrirhugaður þann 12. nóvember. Óskað eftir að áætlunin verði setti upp með þeim hætti að nauðsynlegar leiðréttingar komi þar fram en óskir um aukningu á römmum verði teknar út. Guðrún velti upp hvort ekki mætti horfa til almenningssamgangna til flutnings á nemendum í skólaferðum. Kom fram að fyrirhugaðir eru opnir fundir um fjárhagsáætlun þann 15. og 16. nóvember. Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun til bæjarstjórnar til fyrri umræðu. |
||
|
|
||
|
8. |
201204033 - Fjarskiptamál í dreifbýli |
|
|
Bæjarráð stefnir að uppbyggingu ljósleiðarakerfis um leið og raflínur verða lagðar í jörð í samstarfi við RARIK eða aðrar veitustofnanir. Þangað til verði ráðist í aðgerðir til að tryggja samkeppnishæft netsamband. Bæjarstjóra falið að ganga til samninga við Martölvuna um uppkaup á fjarskiptakerfi á Mýrum. Jafnframt felur bæjarráð bæjarstjóra að vinna minnisblað um utanumhald og áframhaldandi uppbyggingu fjarskiptakerfis á Höfn í eigu sveitarfélagsins. |
||
|
|
||
|
9. |
200812051 - Málefni Ríki Vatnajökuls |
|
|
Bæjarráð stefnir að fundi með stjórn og framkvæmdastjóra Ríkis Vatnajökuls um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í sveitarfélaginu. Á þann fund verður forstöðumaður Háskólaseturs einnig boðaður. Í kjölfarið tekur bæjaráð afstöðu til málsins
|
||
|
|
||
|
10. |
201207011 - Verklýsing um framtíðarfyrirkomulag safnamála |
|
|
Björn Ingi benti á misræmi í tímaáætlun um samningaviðræður um uppsetningu sýninga. Bæjarráð samþykkir framkomna áætlun með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum. Samþykkt. |
||
|
|
||
|
11. |
201209024 - Þjónustusamningur um Nýheima |
|
|
Kom fram að samningur er útrunnin. Bæjarstjóra falið að leita eftir endurnýjun á samningi. |
||
|
|
||
|
12. |
201209023 - Úthlutun byggðakvóta 2012/2013 til sveitarfélagsins |
|
|
Lögð fram gögn er sýna að 300 tonn af kvóta koma til Hornafjarðar. Bæjarráð samþykkir að sömu reglur gildi fyrir úthlutun 2012/2013 og fyrra ár. |
||
|
|
||
|
13. |
201210045 - Skotsvæði fyrir Skotfélag Austur- Skaft. |
|
|
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
||
|
|
||
|
14. |
201210048 - Sýnatökur vegna skólpmengunar í Nesjum |
|
|
Til kynningar. |
||
|
|
||
|
15. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
|
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18.45


