Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 607
607. fundur
607. fundur bæjarráðs Hornafjarðar
haldinn í ráðhúsi, 22. október 2012 og hófst hann kl.16:15.
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason varamaður
Guðrún Ingimundardóttir varamaður
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
|
1210008F - Almannavarnanefnd - 44 |
||
|
Bæjarráð leggur áherslu á að unnið sé að því að útbúa rafmagn í Hofgarði til að hægt verði að tengja varaaflsstöð við Hofgarð. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
2. |
1210010F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 28 |
|
|
Hjalti upplýsti um samtöl við Vatnajökulsþjóðgarð og lögfræðing um samning milli sveitarfélagsins og einkaaðila. Björn Ingi ræddi um bókanir undir 3., 10 og 11. lið. Velti upp hvort sveitarfélagið ætlaði að kosta uppbyggingu sýninga fyrir einstaklinga. Hjalti upplýsti að hugmyndin væri ekki sú að sveitarfélagið legði til fjármuni í endurbætur á húsnæði í eigu einstaklinga. Guðrún ræddi um varðveiðslu gripa í eigu sveitarfélagsins. Gerði snjóbíl sem stóð við Jöklasýningu að sérstöku umtalsefni og að hann þyrfti að vera sýnilegur. Bæjarráð ákveður að taka verklýsingu um framtíðarfyrirkomulag safnamála og ósk um stuðning við Ríki Vatnajökuls sem sérstaka liði á næsta fundi. Ásgerður spurði um fund í framhaldi af viljayfirlýsingu um eflingu Nýheima. Hjalti greindi frá fundi í mennta- og menningarmálaráðuneytinu um málið og fyrirhugaðri komu fulltrúa ráðuneytana til Hornafjarðar. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
3. |
1210006F - hafnarstjórn Hornafjarðar - 148 |
|
|
Hjalti upplýsti að fundur verði með Umhverfisstofnun um losunarsvæði efnis úr höfninni nk. föstudag. Ásgerður spurði um umsóknir í störf í Áhaldahúsi. Hjalti upplýsti um stöðu mála. Guðrún ræddi um komur skemmtiferðaskipa. Þær voru fjórar sl sumar og almenn ánægja verið meðal gesta. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
4. |
1210011F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 27 |
|
|
Björn Ingi óskaði eftir erindi frá grasrótarhópi um forvarnir. Þá spurði hann um fjárveitingar til klúbbastarfs í Þrykkjunni. Ásgerður upplýsti um stöðu mála í klúbbastarfi og ræddi um bágt ástand á mörgum áhöldum í Þrykkjunni. Bæjarráðs samþykkir 150 þ.kr. fjárveitingu til klúbbastarfs í Þrykkjunni. Ásgerður benti á jákvæðar niðurstöður könnunar á högum og líðan ungmenna á Hornafirði sem kynnt verður betur á næstunni. Guðrún benti á umræður um forvarnarstefnu sveitarfélagsins. Guðrún lagði áherslu á að stefnan verði endurskoðuð. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
5. |
201207007 - Fjárhagsáætlun 2013 - Framkvæmdir og rammar til forstöðumanna - gögn verða send út í tölvupósti |
|
|
Haukur Ingi Einarsson og Ásta H. Guðmundssdóttir mættu á fundinn undir þessum lið. Gerðu grein fyrir breytingum á milli funda. Guðrún spurði um gjaldskrár fyrir síðdegishressingu í lengdri viðveru og stöðu við uppbyggingu á Reiðhöll. Upplýst að gjaldskrár verði teknar fyrir í nefndum í nóvember og að fyrirhuguð sé áframhaldandi bygging Reiðhallar á næstu vikum. Björn Ingi spurði um lántöku í ljósi betri rekstrarniðurstöðu á milli funda. Hjalti upplýsti að verið væri að skoða áætlanir um framkvæmdir og lántaka yrði ákveðin í samræmi við þá áætlun. Ásgerður ræddi um samráð við forstöðumenn. Hjalti upplýsti að forstöðumenn yrðu boðaðir til fundar í nóvember og haldnir verði tveir opnir fundir um fjárhagsáætlun, einn á Höfn og annar í sveitum. Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna. |
||
|
|
||
|
6. |
201210043 - Samantekt Sambands. ísl. sveitarfélaga um forsendur fjárhagsáætlana 2013 |
|
|
Bæjarráð Hornafjarðar þakkar góða samantekt sambandsins um forsendur fjárhagsáætlana 2013. Ákjósanlegt væri að slík samantekt lægi fyrir á fjármálaráðstefnu þar sem hún væri kynnt.
|
||
|
|
||
|
7. |
201210041 - Ósk um styrk til átaksins Betra líf- mannúð og réttlæti |
|
|
Vísað til félagsmálaráðs. |
||
|
|
||
|
8. |
201210023 - Ósk um styrk frá Sjónarhóli - ráðgjöf f. foreldra barna með sérþarfir |
|
|
Vísað til félagsmálaráðs. |
||
|
|
||
|
9. |
201210032 - Minnispunktar frá vinnufundi velferðarráðherra með Sambandi íslenskra sveitarfélaga 25. september 2012 |
|
|
Lagt fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
10. |
201210040 - Samningur milli Umhverfisráðuneyti og auðlindaráðuneytis sveitarfélagsins um rekstur Náttúrurstofu á Hornafirði |
|
|
Bæjarstjóra falið að fá afstöðu Skaftárhrepps til samningsins. |
||
|
|
||
|
11. |
201210042 - Skýrsla um áhrif þess ef innanlandsflug flyst til Keflavíkur |
|
|
Bæjarráð Hornafjarðar skorar á Reykjavíkurborg að hlúa að innanlandsflugi með því að samþykkja að flugvöllur verði á fram í Vatnsmýrinni. Þannig rís borgin undir skyldum sínum sem höfuðborg landsins. |
||
|
|
||
|
12. |
201101058 - Hátíðir og stærri menningarviðburðir á Hornafirði - niðurstöður starfshóps og samantekt Rannsóknaseturs HÍ |
|
|
Megin niðurstöður hópsins er að leggja til að gerðir verði samningar við þá aðila sem standa fyrir árvissum viðburðum/hátíðum sem styrktir hafa verið og að þeir samningar verði til lengri tíma. Jafnframt leggur starfshópurinn til að farið verði í átak í markaðssetningu með það að markmiði að draga að fleiri ráðstefnur, fundi og hópa að svæðinu yfir vetrartímann. Einnig að næstu skref er varðar framtíð Humarhátíðar sé að halda opin fund um hátíðina með þeim sem stóðu að henni sl sumar. Bæjarráð felur hátíðarhóp að halda opin fund um Humarhátíð. |
||
|
|
||
|
13. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
|
|
Björn Ingi ræddi um málefni Strætó og hvar eðlilegt sé að stoppustöð sé á Höfn. Bæjarráð tekur málið sem sér lið á næsta fundi. |
||
|
|
||


