Fundargerð bæjarráðs 604
604. fundur bæjarráðs
Hornafjarðar
604. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi , 1. október 2012 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
| 1. |
Félagsmálaráð Hornafjarðar - 233 |
|
Björn Ingi gerði lækkandi greiðslur vegna fjárhagsaðstoðar að umtalsefni. Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum um þróun þessa útgjaldaliðar.
Ásgerður óskaði eftir tölum um atvinnuleysi og sérstaklega yfirliti yfir fjölda langtímaatvinnulausa.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 2. |
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 147 |
|
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 3. |
Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 24 |
|
Hjalti gerði grein fyrir fundi með aðstoðarmanni ráðherra um endurnýjun á þjónustusamningi við HSSA.
Ásgerður ræddi um hugsanlega þörf á íbúðum fyrir eldri borgara. Upplýst að fyrirhugað sé að fá Búmenn á staðinn til fundar og kynningar fyrir áhugasama um uppbyggingu íbúða.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 4. |
Náttúrustofa Suðausturlands |
|
Upplýst um að 17 m.kr. fjárveiting fékkst fyrir rekstur stofunnar á fjárlögum. Hjalti upplýsti um að óskað hafi verið eftir fundi með ráðuneytinu um næstu skref. Jafnframt að óskað hafi verið eftir fundi með fulltrúum Skaftárhrepps um málið en samkomulag var gert á milli sveitarfélaganna um rekstur stofunnar fyrir nokkrum misserum. |
| |
|
|
| 5. |
Deiliskipulag við Jökulsárlón |
|
Lagt fram bréf frá Sameigendafélagi Fells, dags. 20. september þar sem framkomnu skipulagi er fagnað og hvatt til þess að það taki gildi sem fyrst.
Lagt fram bréf frá Vegagerðinni dags. 20. september, þar sem framkomnu skipulagi er mótmælt m.a. vegna þess að Vegagerðin hafi ekki ennþá lokið skoðun sinni á hvort og þá hvert væri skynsamlegt að flytja farveg Jökulsár. Hjalti gerði grein fyrir tölvuskeyti til Vegamálastjóra um málið þar sem m.a. hafi komið fram óánægja með hvenær þessi sjónarmið séu framkominn í ferlinu og vísaði þá m.a. til ráðstefnu í Freysnesi fyrir um ári síðan þar sem skipulagið var kynnt.
Bæjarráð bendir á að deiliskipulagið er búið að vera lengi í vinnslu og sérstaklega hafi verið gætt að samráði við alla hagsmunaaðila. Bæjarráð lýsir yfir verulegum efasemdum um skynsemi þess að flytja Jökulsá þar sem fyrirhugað er að byggja upp mannvirki. Bæjarráð bendir jafnframt á að afar brýnt er að byggja upp þjónustumannvirki til að taka á móti öllum þeim fjölda ferðamanna sem sækja svæðið heim árelga. Um verulega hagsmuni er að ræða fyrir ferðaþjónustu á svæðinu öllu og þar með samfélagið í heild. Bæjarráð harmar því hversu seint sjónarmið Vegagerðarinnar eru kominn fram í þessu ferli.
|
| |
|
|
| 6. |
Starfsmannamál í Áhaldahúsi |
|
Birgir Árnason kom á fundinn undir þessum lið. Kom fram að tveir starfsmenn láta af störfum í Áhaldahúsi núna í haust. Lögð fram tillaga um að auglýsa annars vegar eftir einstaklingi með vinnuvélaréttindi og hins vegar eftir garðyrkjufræðingi. Hugmyndin er sú að garðyrkjufræðingur hefði umsjón með viðhaldi og endurbótum á opnum svæðum í samstarfi við aðra starfsmenn umhverfis- og tæknisviðs. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu og felur starfsmönnum að auglýsa störfin. |
| |
|
|
| 7. |
Fyrirspurnir - bæjarráð |
|
Engar fram komnar. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17.00