Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 603
603. fundur
603. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi , 24. september 2012 og hófst hann kl.16:15.Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Valdemar Einarsson 1. varaforseti
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
|
1209007F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 25 |
||
|
Valdemar spurði um málefni Þrykkjunnar og sérstaklega um ástand búnaðar og tækja sem Þrykkjan hefði yfir að ráða. Greindi Hjalti frá viðræðum við forstöðumann Þrykkjunnar og sagði að málið verði tekið fyrir við gerð fjárhagsáætlunar. Valdemar spurði um gjaldskrá sundlaugar og í hverju tillögu forstöðumanns fælist. Ásgerður upplýsti að nefndin hafi ákveðið að breyta miðakerfi og aðlaga gjaldskránna að sambærilegum laugum. Valdemar spurði um í hverju sáttargerð vegna ráðningar deildarstjóra í Grunnskóla felist. Hjalti útskýrði málið. Þá las Hjalti upp bréf frá skólastjórnendum vegna málsins. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
2. |
1208006F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 27 |
|
|
Hjalti upplýsti um fundi með ábúendum á Hólmi á Mýrum og Hoffelli í Nesjum um samstarf í uppsetningu sýninga. Þá greindi Hjalti frá fundi með eigendum Huldusteins á Höfn. Sagði að næsta skref væri að gera uppkast að samtarfssamningi við þessa aðila og gera áætlun um uppsetningu sýninga. Málið verði síðan tekið fyrir í atvinnu- og menningarmálanefnd og bæjarráði. Valdemar ræddi um hugmynd um ráðningu starfsmanns til að sinna markaðssetningu fyrir listamenn og hópa. Bæjarráð vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
3. |
1209001F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 29 |
|
|
Rætt um umhirðu og viðhald á leiktækjum. Mikill umræða skapðist um næsta áfanga í uppbyggingu göngustígs. Bæjarráð telur mikilvægt að göngustígur með strandlengju verði tengdur við núverandi stígakerfi. Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
4. |
201209036 - Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga 799. fundur |
|
|
Fundargerð til kynningar. |
||
|
|
||
|
5. |
201007027 - Bókun umhverfis- og skipulagsnefndar um leiktæki á leikvöllum í sveitarfélaginu |
|
|
Bæjarráð vísart tillögu umhverfis- og skipulagsnefndar um nauðsyn þess að taka frá fjármuni fyrir viðhald og nýframkvæmdir á leikvöllum í sveitarfélagsinu. |
||
|
|
||
|
6. |
201102060 - Skólavogin - samþykki skólanefndar um áskrift |
|
|
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í skólavoginni sem veitir góða yfirsýn yfir rekstur og starfsemi skóla auk þess að auðvelda samanburð á milli sveitarfélaga í málaflokknum. |
||
|
|
||
|
7. |
201203093 - Skipurit ráðhúss |
|
|
Hjalti ræddi nauðsyn þess að taka upp skipurit í ráðhúsi. Bæjarráð felur bæjarstjóra áframhaldandi vinnu í málinu. |
||
|
|
||
|
8. |
201207011 - Verklýsing um framtíðarfyrirkomulag safnamála |
|
|
Lögð fram verk- og kostnaðaráætlun sem unnin var af bæjarstjóra og forstöðumanni Menningarmiðstöðvar. Bæjarráð samþykkir að vísa framkomnu skjali til umræðu í atvinnu- og menningarmálanefnd. |
||
|
|
||
|
9. |
201209022 - Ósk um ráðningu nýs starfsmanns á félagssvið |
|
|
Jón Kristján Rögnvaldsson, félagsmálastjóri, sat fundinn undir þessum lið. Gerði hann grein fyrir ósk hans og fulltrúa málefna fatlaðra um ráðningu starfsmanns í málefnum barna á félagssviði. Sagði að þörf væri á frekari úrræðum á þessu sviði. Bæjarráð lýsir sig jákvætt en vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar. |
||
|
|
||
|
10. |
201206018 - Kaupréttur á kennsluhúsnæði Nesjaskóla - samkomulag við Hótel Jökul ehf. |
|
|
Lögð fram drög að samkomulagi á milli sveitarfélagsins og Hótels Jökuls um kaup á kennsluhúsnæði í Nesjum. Bæjarstjóra veitt umboð til að ljúka samningum samkvæmt framlögðum drögum og þeim breytingum sem gerð voru á drögunum á fundinum. |
||
|
|
||
|
11. |
201209023 - Auglýsing umsóknar um byggðakvóta 2012/2013 |
|
|
Hjalti upplýsti að sótt hafi verið um. Reynir óskaði eftir upplýsingum um ráðstöfun byggðakvóta 2011-2012 |
||
|
|
||
|
12. |
201209015 - Nemakort í strætó |
|
|
Bæjarráð samþykkir að veita þeim sem ekki njóta jöfnunarstyrk (dreifbýlisstyrk) stuðning við kaup á nemakortum í strætó allt að 4.000 krónum, sbr. fyrirspurn. |
||
|
|
||
|
13. |
201003048 - Samningur við Hólabrekku ehf. |
|
|
Hjalti vék af fundi undir þessum lið. Jón Kristján Rögnvaldsson sat fundinn undir þessum lið. Jón Kristján fór yfir gagntilboð frá Hólabrekku og kynnti stöðu mála. Ákveðið að bjóða fulltrúum Hólabreku á fund bæjarráðs í næstu viku. |
||
|
|
||
|
14. |
201208037 - Útboð á raforkukaupum sveitarfélagsins |
|
|
Haukur Ingi Einarsson sat fundinn undir þessum lið. Gerði hann grein fyrir undirbúningi útboðsgagna og aðkomu lögfræðings og sérfræðinga á sviði raforku að þeirri vinnu. Bæjarráð samþykkir framlögð útboðsgögn. |
||
|
|
||
|
15. |
201209037 - Stofnun samtaka sjávarútvegssveitarfélaga |
|
|
Bæjarráð samþykkir að gerast aðili að samtökunum. Bæjarstjóra falið að vera fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum. |
||
|
|
||
|
16. |
201209035 - Ágóðahlutagreiðsla Brunabótar 2012 |
|
|
Sveitarfélagið fær í sinn hlut alls 1,6 m.kr. |
||
|
|
||
|
17. |
201209029 - Ósk um umsögn á drögum að frumvarpi til náttúruverndarlaga |
|
|
Bæjarstjóra falið að gera drög að umsögn. |
||
|
|
||
|
18. |
201209034 - Aðstaða fyrir ferðamenn við Jökulsárlón |
|
|
Bæjarráð tekur undir það sjónarmið stjórnar Ríkis Vatnajökuls ehf að afar brýnt er að uppbygging við Jökulsárlón taki mið af þörfum þeirra ríflega 200 þúsund ferðamanna sem sækja svæðið heim. Bæjarráð vill benda á að undanfarin misseri hefur sveitarfélagið leitt deiliskipulagsvinnu sem útlit er fyrir að ljúki á næstu mánuðum. Bæjarstjóra falið að gera eigendum Fellsjarðarinnar grein fyrir sjónarmiðum og ályktun stjórnar Ríkis Vatnajökuls ehf um málið. |
||
|
|
||
|
19. |
201209039 - Aðgengi allra að Jökulsárlóni |
|
|
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
||
|
|
||
|
20. |
201105036 - Almenningssamgöngur á Suðurlandi |
|
|
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við framlögð gögn. |
||
|
|
||
|
21. |
201209044 - Staða bæjarsjóðs 31. ágúst 2012 |
|
|
Kom fram að rekstrarniðurstaða er alls kr 110 m.kr og handbært fé frá rekstri alls 208 m.kr. |
||
|
|
||
|
22. |
201209041 - Bætt aðgengi að íbúð |
|
|
Jón Kristján Rögnvaldsson sat fundinn undir þessum lið. Gerði grein fyrir nauðsynlegum lagfæringum vegna þarfa fatlaðs einstaklings. Bæjarráð samþykkir 250 þúsund krónar fjárveitingu vegna verkefnisins. |
||
|
|
||
|
23. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
|
|
|
||


